Skikka má foreldri til umgengni 16. janúar 2010 05:00 Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra á Alþingi. Nú eru í kynningu drög að frumvarpi til breytinga á lögum sem varða forsjá barna, búsetu og umgengni foreldra við þau. Fréttablaðið/Valli
Nefnd dóms- og mannréttindamálaráðherra leggur til margvíslegar breytingar á lögum sem lúta að forsjá barna, búsetu og umgengni. Nefndin skilaði frumvarpi og greinargerð til Rögnu Árnadóttur ráðherra á þriðjudag. Nefndin var skipuð í desember 2008. Meðal þess sem lagt er til í tillögum nefndarinnar er að dómurum verði veitt heimild til að ákveða að foreldrar skuli fara sameiginlega með forsjá barns, þótt annað foreldra sé því andvígt. Ræður þá mat dómarans um að sameiginleg forsjá þjóni hagsmunum barnsins. Þá getur dómari kveðið á um umgengni foreldris við barn í allt að sjö daga af hverjum fjórtán, að kostnaði við umgengni verði skipt og að forsjárlausir foreldrar fái aðgang að skriflegum upplýsingum skóla. „Einnig er lagt til að dómurum verði veitt heimild til þess að leysa sérstaklega úr ágreiningi foreldra um lögheimili án þess að forsjármál sé rekið samhliða. Ekki er á hinn bóginn lagt til að barn geti átt lögheimili á tveimur stöðum samtímis,“ segir í greinargerð á vef ráðuneytisins. „Efnislega má segja að frumvarpsdrögin skapi skilnaðarbörnum og foreldrum þeirra – allt að því – sambærilega réttarstöðu og þekkist á Norðurlöndum,“ segir Lúðvík Börkur Jónsson, varaformaður Félags um foreldrajafnrétti, í greinargerð á vef félagsins. - óká
Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Tryggvi Gíslason er látinn Innlent Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Innlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent Íranir gerðu hefndarárásir á herstöðvar í nágrannaríkjunum Erlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Innlent Fleiri fréttir Starfsleyfi takmarkað vegna lyfjaávísana Leiðtogaskipti hjá Sósíalistaflokknum Bein útsending: Ræða öryggis- og stjórnmálasamstarf á Eystrasaltssvæðinu Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Eldhúsdagur runninn upp Fræsa og malbika Reykjanesbraut við Smáralind í kvöld Tryggvi Gíslason er látinn Öskur, reykelsisfnykur, greiðslufall og gámarót Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Sjá meira