Sautján ára gömul stúlka grunuð um að hafa sprengt sig Jón Hákon Halldórsson skrifar 2. apríl 2010 11:45 Stúlkan sem grunuð er um ódæðið. Mynd/ AFP.
Sautján ára gömul ekkja uppreisnarmanns frá Kákasus er grunuð um að vera önnur þeirra sem sprengdu sig í loft upp á neðanjarðarlestarstöð í Moskvu á mánudagsmorgun. Tvær sprengjur sprungu með skömmu millibili með þeim afleiðingum að 39 fórust og meira en 70 særðust. Flestir hinna særðu eru enn á spítala. Breska fréttastofan BBC hefur það eftir talsmanni rússnesku lögreglunnar að stúlkan, sem hét Dzhennet Abdurakhanova, hafi verið gift íslömskum hryðjuverkamanni sem rússneska leyniþjónustan banaði rétt fyrir síðustu áramót. Lögreglumaðurinn sagðist ekki geta staðfest að umrædd stúlka væri sú sem hefði sprengt sig. Ljósmynd af stúlkunni sem birtist í rússneska blaðinu Kommersant, virðist hins vegar benda til þess að um hana sé að ræða segir fréttaritari BBC í Moskvu. Talið er að stúlkan sé sú sem sprengdi sprengjuna í Lubyanka en sú sprengja varð 20 manns að bana, að þvi er fram kom í Kommersant. Ekki er búið að bera kennsl á konuna sem sprengdi hina sprengjuna. Stúlkan var frá héraði í Dagestan, á Kákasussvæðinu, sem er staðsett rétt við landamærin að Chechnya. Talið er að hún hafi farið til Moskvu með rútu ásamt hinni sprengjukonunni.
Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Erlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Segir upp eftir tvær vikur í starfi Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Erlent Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Innlent Fleiri fréttir Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Sjá meira