Katrín: Baltasar rosa sætur Jón Hákon Halldórsson skrifar 1. mars 2010 13:30 Katrín segir að staðið verði við niðurskurðinn en bendir á að reynt hafi verið að koma til móts við kvikmyndagerðarmenn með framlögum úr Menningarsjóði útvarpsstöðva. Mynd/ Stefán. „
Mér fannst Baltasar rosa sætur. Hann stóð nú eiginlega alveg upp úr," segir Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra um Edduverðlaunahátíðina sem fram fór um helgina. Hátíðin var hinn allra glæsilegasta. Á hinn bóginn máttu ríkisstjórnin, Katrín Jakobsdóttir menntmálaráðherra og Páll Magnússon útvarpsstjóri sæta harðrar gagnrýni vegna þess niðurskurðar sem boðaður hefur verið á kvikmyndagerðarmenn. Baltasar tók hins vegar fram að Katrín væri það viðkunnanleg að það væri erfitt að vera henni reiður. Katrín segist hins vegar gera ráð fyrir að fyrirhugaður niðurskurður muni standa. „Það liggur alveg fyrir að þetta er 23% niðurskurður þó að kvikmyndagerðamenn tali alltaf um 35%," segir Katrín. Ástæðan sé sú að kvikmyndagerðamenn hafi átt von á auknum framlögum. „Hins vegar má segja að við höfum komið til móts með því að kynna að það yrði úthlutað úr Menningarsjóði útvarpsstöðva 40 milljónum, bæði í ár og næsta ár, sem hlýtur nú að skipta máli núna líka," segir Katrín. Katrín bendir jafnframt á að kvikmyndagerðamenn séu ekki þeir einu sem þurfi að sæta 20% niðurskurði. Bendir hún á Íslensku óperuna máli sínu til stuðnings. Katrín viðurkennir þó að niðurskurðurinn geti reynst kvikmyndagerðamönnunum erfiður. Það er alveg ljóst að niðurskurður hefur áhrif. Það er alveg eins með íslenska kvikmyndagerð og hvað annað," segir Katrín. Bendir hún til að mynda á að þetta megi sjá í skólum og víðar. Katrín segist hins vegar hafa talað við kvikmyndagerðamenn sem muni tímana tvenna þegar komi að því að ákveða fjárframlög til íslenskar kvikmyndagerðar. Hún sé þess handviss að niðurskurðurinn núna þýði ekki dauða íslenskrar kvikmyndagerðar.
Mest lesið Fimm mínútna viðbót við aðgerð geti dregið úr áhættu á krabbameini Innlent Fannst eftir rúma tveggja sólarhringa leit: „Hún er eitthvað óvenjuleg þessi hryssa“ Innlent Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Erlent Mun Tækniskólinn rísa í Úlfarsárdal? Innlent Hafna viðræðum til hægri Erlent Eldur í Elliðaárdal Innlent Rússneskur auðjöfur borgaði fyrir draumabrúðkaup Trumps Erlent Snúist um dómgreind frekar en gervigreind Innlent Útlendingum fækkað það sem af er ári Innlent Tímabært sé að skoða vaxtarmörk borgarinnar Innlent Fleiri fréttir Tímabært sé að skoða vaxtarmörk borgarinnar Í forgangi sé að ræða við starfsfólk SÁÁ og tryggja vinnufrið Útlendingum fækkað það sem af er ári Fimm mínútna viðbót við aðgerð geti dregið úr áhættu á krabbameini Mun Tækniskólinn rísa í Úlfarsárdal? Snúist um dómgreind frekar en gervigreind Fannst eftir rúma tveggja sólarhringa leit: „Hún er eitthvað óvenjuleg þessi hryssa“ Þyrlurnar sinntu útkalli úti á ballarhafi annan daginn í röð Eldur í Elliðaárdal Dómur um ólögmæt bílastæðagjöld gæti verið fordæmisgefandi Samkomulag Tækniskólans og Hafnarfjarðar út um þúfur Unnið að uppfærslu umferðarljósa Mannauðsstjórinn skipaður forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands Grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein Höfnuðu kraðaki raka um meint ólögmæti atkvæðagreiðslunnar Vill stórminnka Rúv og hafnar tengingu Gísla við fjarhægri Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Greip um eistu lögreglumanns „Takmörkuð sólmyrkvaáhrif“ Íþróttafélög fá að beina frekari upplýsingum að börnum Tíu þúsund börn búi á heimilum undir lágtekjumörkum Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Hóta tollum vegna hvalveiða og hægri stjórn virðist fallin Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Lýsa vonbrigðum með framgöngu Icelandair í miðri atkvæðagreiðslu Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Frakkar og Litáar endurskoða Ríkisendurskoðun Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Sjá meira