Konur eiga á hættu að veikjast af of gömlum snyrtivörum Óli Tynes skrifar 1. mars 2010 13:53
Konur eiga á hættu að veikjast og skaddast í andliti vegna þess að þær geyma snyrtivörur langt framyfir þann tíma sem þær eru útrunnar. Það er vegna þess að gamlar snyrtivörur eru sagðar vera gróðrarstía fyrir bakteríur sem geta valdið skinnangri og jafnvel sýkingum. Það er best að taka strax fram að það var Debenhams verslanakeðjan sem gerði könnun á snyrtivörugeymslu meðal eittþúsund kvenna í Bretlandi. Debenhams hefur augljóslega hag af því að konur skipti sem örast um snyrtivörur. Hvað sem því líður vissu fáar breskar konur um að samkvæmt reglum Evrópusambandsins eru framleiðendir skyldugir til þess að setja neðan á dósirnar merkingu um hversu lengi má nota þær eftir að búið er að opna þær. Merkið er mynd af opinni dós og sá mánaðafjöldi sem óhætt er að geyma hana eftir opnun. Mikill meirihluti kvennanna (68 prósent) sögðu að þær fengju sér aðeins nýja vöru eftir að sú gamla væri búin, hversu langan tíma sem það tæki. Augnskuggar og kinnalitur virðast sérstaklega langlíf í veskjum kvenna. Meðal geymslutíminn reyndist vera 15 ÁR frekar en þeir 18-24 mánuðir sem mælt er með. Konur virðast einnig eiga erfitt með að fleygja varalit. Hann er geymdur í heilan áratug en mælt er með 12-24 mánuðum. Þá getur einnig verið varasamt að deila snyrtivörum með fjölskyldu og vinum. Förðunarsvampar eru sérstaklega bakteríusæknir ef þeir eru ekki þvegnir reglulega.
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Innlent Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Innlent Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent Fleiri fréttir Skipulögð leit eftir skotárás á hátíð „Nú er komið að mér“ Ávarpar norsku þjóðina í fyrsta skipti sem konungur Milljónir í sekt fyrir að veðja á ræður forsetans Minnst þrjátíu og sjö látin eftir árás Rússa Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Sjá meira