Vill að Sjálfstæðismenn taki skýrsluna alvarlega 9. apríl 2010 15:08
Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins vill að flokksmenn sínir taki niðurstöðum í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis alvarlega og dragi lærdóm af þeim. Þetta kemur fram í ávarpi Bjarna á heimasíðu Sjálfstæðisflokksins.Í ávarpinu segir Bjarni m.a.: „Nefndin var sett á laggirnar haustið 2008 að frumkvæði Sjálfstæðisflokksins og með stuðningi formanna allra flokka, en engin fordæmi eru í þingsögunni fyrir sambærilegu rannsóknarstarfi. Mikilvægt er að niðurstöður nefndarinnar nýtist þjóðinni við uppgjör á því sem úrskeiðis fór í aðdraganda bankahrunsins og ekki síður við þá endurreisn sem framundan er. Þjóðin á að sameinast um að draga lærdóm af skýrslunni eftir því sem kostur er og nýta niðurstöður hennar á uppbyggilegan hátt, svo tryggt verði að sagan endurtaki sig ekki. Vafalaust verða skiptar skoðanir um einstaka efnisþætti og niðurstöður en ég vona engu að síður að skýrslan geti orðið til þess að leiða til þeirrar sáttar sem nauðsynleg er í samfélaginu og að hún geti markað upphaf endurreisnar lífsgæða í landinu. Ég skora á trúnaðarmenn flokksins að kynna sér efni skýrslunnar og taka virkan þátt í umræðum um niðurstöður hennar. Í því sambandi vil ég leggja sérstaka áherslu á eftirfarandi atriði: 1. Að við tökum niðurstöður skýrslunnar alvarlega, drögum lærdóm af þeim og nýtum þær á uppbyggilegan hátt í umræðunni sem framundan er. 2. Að við metum niðurstöður skýrslunnar með yfirveguðum hætti og vörumst dómhörku og sleggjudóma gagnvart þeim sem þær varða. 3. Að við gerum okkur og öðrum grein fyrir því að skýrslan veitir okkur í senn tækifæri til og leggur okkur skyldur á herðar um, að ná sátt í samfélaginu og hefja í kjölfarið uppbyggingu á nýjum grunni."
Mest lesið „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Innlent „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Innlent Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Erlent Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Innlent Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Innlent Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun Innlent Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Hefur áhrif að vera háður umönnunaraðilum Innlent Fleiri fréttir „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Hefur áhrif að vera háður umönnunaraðilum „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun „Aðild að Evrópusambandinu myndi skapa stöðugleika“ Olíuverð, starfslok og vinsældir hristibretta Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja „Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópusambandið“ Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Bak við lás og slá grunaður um risastórt kókaínsmygl Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn og fíkniefni í Norrænu Frestur til að svara fyrirspurn ESA löngu útrunninn Bein útsending: Fundur atvinnuvegaráðherra og sjávarútvegsstjóra ESB Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Flestir vilja leiguþak Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Sjá meira