Innlent

Svavar Halldórsson: Auðmenn reyna að hræða blaðamenn

Svavar Halldórsson segir auðmenn reyna að hræða blaðamenn frá störfum sínum.
Svavar Halldórsson segir auðmenn reyna að hræða blaðamenn frá störfum sínum.

„Tilgangurinn er augljóslega sá að hræða blaðamenn frá því að fjalla um aðdraganda hrunsins. Það er alveg augljóst í mínum huga," segir Svavar Halldórsson, fréttamaður fréttastofu Ríkisútvarpsins en Pálmi Haraldsson hefur stefnt honum vegna fréttar sem hann flutti í kvöldfréttunum í lok mars.

Svavar greindi frá því í fréttinni sem birtist 25. mars síðastliðinn að tveir og hálfur milljarður sem Pálmi fékk lánaða hjá Glitni hafi horfið í reyk.

Þessu hafnar Pálmi alfarið og segist geta gert grein fyrir því hvað varð um féð. Það hafi annarsvegar farið í að greiða skuldir og svo farið í peningamarkaðssjóði.

Fréttakonunni Maríu Sigrúnu Hilmarsdóttur og Páli Magnússyni hefur verið stefnt til vara.

Pálmi krefst þriggja milljóna í miskabætur.

„Fréttin er rétt," segir Svavar sem stendur við umfjöllunina. Aðspurður hvort málsóknin hafi komið honum á óvart segir hann að hótanir um hana hafi borist bæði í orði og eins í símskeyti.

Hann segir auðmennina komna í nauðavörn varðandi stefnur gagnvart fréttamönnum og bætir við: „Menn hafa gert þetta hingað til með allskyns skömmum og hótunum en virðast ganga lengra í þetta sinn."

Þá spyr Svavar að fyrst auðmenn eigi tiltæka peninga til þess að eyða í lögsóknir gegn blaðamönnum afhverju leggi þeir þá ekki féð í fallin fyrirtæki til þess að bæta skaða kröfuhafanna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×