Skotárás í Bústaðarhverfi: Ung börn á heimilinu Þorbjörn Þórðarson skrifar 25. desember 2010 11:54 Umfangsmikil leit var gerð af manni sem kýldi lögreguþjón í andlitið og flúði í gær. Hann fannst þó á endanum. Lögreglumaðurinn hlaut skurð í andliti og var saumaður á LSH. Mynd/Stöð2
Grunur leikur á að skotárásin í Ásgarði í Bústaðarhverfinu í gærmorgun tengist handrukkun en á heimilinu eru hjón með ung börn. Sex voru handteknir og fimm gistu fangageymslur vegna málsins og hefur verið krafist gæsluvarðhalds yfir þeim. Lögreglan fékk fyrst tilkynningu um skotárásina í Ásgarði klukkan 11:41 fyrir hádegi í gærdag. Skotið var með haglabyssu á útidyrahurðina en á heimilinu eru tvö ung börn. Þau sluppu öll ómeidd. Sex voru handteknir, allir Íslendingar á þrítugsaldri, og var einum sleppt að lokinni skýrslutöku. Sérsveit ríkislögreglustjóra tók þátt í aðgerðunum.Undir áhrifum örvandi fíkniefna Grunur leikur á að um handrukkun hafi verið að ræða. Mennirnir, sem talið er að hafi verið undir áhrifum örvandi fíkniefna, voru handteknir á víð og dreif í kringum Ásgarð þar sem skotárásin átti sér stað. Einn lögreglumaður slasaðist og hlaut skurð í andliti þegar einn hinna handteknu sló hann hnefahöggi. Var hann saumaður á slysadeild Landspítalans. Sérsveit ríkislögreglustjóra aðstoðaði lögreglu við aðgerðina. Í morgun um ellefuleytið voru mennirnir leiddir fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur og krafist var gæsluvarðhalds yfir þeim. Hafa þeir allir fengið verjendur. Samkvæmt almennum hegningarlögum varðar húsbrot allt að eins árs fangelsi ef sá sem brot framdi beitti ofbeldi eða hótunum og ef það var framið af nokkrum í sameiningu. Einnig er til skoðunar brot á vopnalögum og lögum um ávana og fíkniefni. Ekki er grunur um rán, en mennirnir höfðu ekki með sér nein verðmæti. Nánar verður fjallað um málið hér á Vísi og í fréttum Stöðvar 2 í kvöld kl. 18:30. thorbjorn@stod2.is
Mest lesið Bauð manni að gista, batt hann við stól og lét hann drekka úr skál á gólfinu Innlent Sundlaugargestur handtekinn Innlent Jarðskjálfti við Langjökul: „Þetta er sá stærsti síðan árið 2007“ Innlent Hinn grunaði var leiðbeinandi barna í tæplega tvö ár Innlent Ekkert sem bendi til þess að um sé að ræða óvinveitt geimskip Innlent Blaðaviðtal við Matthías lagt fram í gögnum málsins Innlent „Það bjó enginn í húsinu“ Innlent „Pútín fékk það út úr þessum fundi sem hann vildi“ Innlent Taldi upp nýlendur sem ætti að endurheimta Erlent Kærður fyrir að taka myndband af vettvangi slyss Innlent Fleiri fréttir RÚV grafi undan tilvist sinni með nýrri auglýsingu Hundrað þúsund ferðamenn heimsóttu Jökulsárlón í júlí Ekkert bann við opnum kvíum en „skussinn borgi brúsann“ Hinn grunaði var leiðbeinandi barna í tæplega tvö ár Loka Miðfjarðará með grjóti og segja stjórnvöld hafa dregið lappirnar Fundað um Múlaborg og eldislöxum varist Braust inn á flugvallarsvæðið Ekkert bendi til að brotið hafi verið á fleiri börnum Hnullungur þveraði veginn þar sem banaslys varð „Það gengur ekki að við séum með starfsemi sem sniðgengur lögin hér á Íslandi“ „Það bjó enginn í húsinu“ Ekkert sem bendi til þess að um sé að ræða óvinveitt geimskip Vísað ölvuðum frá borði á leið frá Keflavík Heilunarguðþjónustur í Lágafellskirkju njóta mikilla vinsælda „Pútín fékk það út úr þessum fundi sem hann vildi“ Segir dómsmálaráðherra hafa talað inn í óttann Íþróttafélag kært fyrir að bjóða upp á áfengi utandyra Evrópa verði að hætta að stóla á Bandaríkin og ólögleg bílastæðagjöld Blaðaviðtal við Matthías lagt fram í gögnum málsins Bauð manni að gista, batt hann við stól og lét hann drekka úr skál á gólfinu Kærður fyrir að taka myndband af vettvangi slyss Deilt um fund Trump og Pútín og leigubílamarkaðurinn Jarðskjálfti við Langjökul: „Þetta er sá stærsti síðan árið 2007“ Sundlaugargestur handtekinn Furðuísar hjá Kjörís og 70 ára afmæli Heilsustofnunar Hlaupa sex maraþon á jafnmörgum dögum í jakkafötum Eldur á svölum reyndist vera íbúi að grilla Rýnt í fund Trump og Pútíns og jakkafataklæddir raðmaraþonhlauparar „Það hefði auðvitað verið betra“ Kristinn Örn lést eftir hitaslag á Spáni Sjá meira