Áhorfendur hafa valið bestu leiksýningar leikársins 16. júní 2010 09:27 Frá leikritinu 39 þrep.
Hin árlega uppskeruhátíð leiklistarinnar, Gríman, verður haldin hátíðleg í kvöld. Síðustu tvær vikur hefur staðið yfir netkosning um bestu leiksýningar leikársins að mati áhorfenda. Nú liggur fyrir hvaða fimm sýningar voru í uppáhaldi hjá áhorfendum í vetur. Það eru leiksýningarnar 39 þrep í uppsetningu LA, Faust í uppsetningu Borgarleikhússins í samstarfi við Vesturport, Fjölskyldan í uppsetningu Borgarleikhússins, Gauragangur í uppsetningu Borgarleikhússins og Skoppa og Skrítla í uppsetningu Borgarleikhússins. Símakosning stendur yfir fram á kvöld og verða úrslitin tilkynnt á Grímuhátíðinni sem fer fram í Þjóðleikhúsinu og verður sjónvarpað í opinni dagskrá á Stöð 2, segir í tilkynningu. Símakosning stendur yfir og allir geta tekið þátt: 39 ÞREP - símanúmer 900 1201 FAUST- símanúmer 900 1202 FJÖLSKYLDAN - ÁGÚST Í OSAGE-SÝSLU-símanúmer 900 1203 GAURAGANGUR - símanúmer 900 1204 SKOPPA OG SKRÍTLA Á TÍMAFLAKKI - símanúmer 900 1205 Þrír heppnir þátttakendur í símakosningunni eiga þess kost að vinna árskort fyrir tvo í leikhúsið; Þjóðleikhúsið, Borgarleikhúsið og á sýningar Leikfélags Akureyrar. Úrslitin verða kynnt í beinni útsendingu í lok Grímuhátíðarinnar á Stöð 2 í kvöld. Símtalið kostar 99 krónur. Almennar tilnefningar til Grímuverðlaunanna 2010 voru kunngjörðar 4. júní og þá hófst kosning um áhorfendasýningu ársins. Fimm sýningar hlutu tilnefningar sem sýning ársins; Djúpið í uppsetningu Borgarleikhússins í samstarfi við Strit, Faust í uppsetningu Borgarleikhússins í samstarfi við Vesturport, Fjölskyldan í uppsetningu Borgarleikhússins, Íslandsklukkan í uppsetningu Þjóðleikhússins og Jesús litli í uppsetningu Borgarleikhússins. Grímuhátíðin, árleg uppskeruhátíð sviðslistageirans, verður haldin í áttunda sinn í Þjóðleikhúsinu í kvöld og hafa aldrei fleiri frumflutt sviðsverk komið til álita, en þau voru alls 89. Þar að auki komu 7 útvarpsverk til álita. Alls voru því frumflutt 96 verk á leikárinu 2009-10 sem fagnefndir Grímunnar skoðuðu með verðlaunin eftirsóttu í huga.
Mest lesið Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Innlent Siggi stormur sár en dregur ekki í land Innlent Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Innlent Hröpuðu til bana í skoðunarflugi yfir Nazca-línurnar Erlent Handtóku níu og nutu liðsinnis sérsveitar vegna staks eggvopns Innlent Sumarhús við Þingvallavatn eyðilagðist í eldsvoða Innlent Guðmundur Felix kominn með krabbamein Innlent Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Innlent Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Innlent Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Innlent Fleiri fréttir Maður á sjötugsaldri kýldi konu til blóðs í miðbænum Þrír handteknir eftir átök í heimahúsi Sexan millilendir aftur í Reykjavík Siggi stormur sár en dregur ekki í land Sveitarstjóri hefur miklar áhyggjur af ástandi Vestfjarðavegar Grunaður um sölu fíkniefna á Þjóðhátíð Efnahags- og Evrópumál, hvalveiðar og laxeldi á landi á Sprengisandi Handtóku níu og nutu liðsinnis sérsveitar vegna staks eggvopns Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Sumarhús við Þingvallavatn eyðilagðist í eldsvoða Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Minkur í Vestmannaeyjum tilkynntur til Mosfellsbæjar Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Hvorki tilkynnt um kynferðisbrot né líkamsárás fyrstu nóttina Líður eins og Gísli á Uppsölum sé kominn heim Slasaðist á fæti uppi á hálendi Veðrið „eins og eftir pöntun“ Guðmundur Felix kominn með krabbamein Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Afdrif Bandero og hættulegt ástand í Dölum Yfirheyrslum lokið og ekki gerð krafa um gæsluvarðhald Sex fíkniefnamál komu upp í Eyjum „Ég er skrímsli“ Landhelgisgæslan sótti mann í Vestmannaeyjum Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Skipulagður brotahópur kúgaði íslenskan pilt með gervigreindarmyndbandi Regnboginn kominn aftur á tröppurnar Sjá meira