Ný tæki komast ekki á Netið klárist IP-tölur Óli Kristján Ármannsson skrifar 10. apríl 2010 05:00 Saman á netinu Hér sjást þrjár stúdínur í Árbæjarskóla sameinast um eina tölvu. Þegar tölvur tengjast internetinu er þeim úthlutað auðkennisnúmeri, svokallaðri IP-tölu, líkt og bílum bílnúmerum. Sú kynslóð IP-talna sem nú er notast við er á þrotum. Fréttablaðið/GVA
Auðkennistölur fyrir tölvur á internetinu (IPv4) eru við það að klárast. Í nýrri skýrslu Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) kemur fram að í mars á þessu ári hafi ekki verið eftir nema átta prósent af IP-tölum þessarar gerðar. Í skýrslu OECD er fjallað um hvernig gengur að koma á næstu kynslóð auðkenna í netsamskiptum, en hún nefnist Internet Addressing: Measuring Deployment of IPv6. Bent er á að klárist IPv4 auðkenni áður en næstu kynslóð hefur verið komið almennilega í gagnið gæti það þýtt að nýir netnotendur og þráðlaus tæki komist ekki í samband við internetið. Það myndi svo aftur hamla framþróun á Netinu, nýrri tækni og þjónustu. Niðurstaðan er því að meira þurfi að gera í málinu og hraðar. Til þess að geta komið nýjum viðskiptavinum eða tækjum í samband við Netið þurfa fjarskiptafyrirtæki að vera tilbúin með stuðning við næstu kynslóð samskiptatækni á Netinu (IPv6) þegar auðkennisnúmer í IPv4 kerfinu þrýtur. OECD bendir á að öðrum kosti þurfi að koma til bæði dýr og flókinn búnaður til að netfangagreiningar (NAT, eða network address translation) til þess að hægt verði að láta marga notendur og tæki nota sömu IPv4 töluna. Ósvarað er spurningum um hvaða áhrif það myndi hafa á rannsókn sakamála þar sem tölvur og notendur hafa verið raktir til ákveðinna IP-talna. „Eins og staðan er þá er ekki nóg að gert í að koma IPv6 í gagnið áður en IPv4 auðkenni þrýtur. Mun meira átak þarf að eiga sér stað til þess að stoðkerfi internetsins verði reiðubúið þegar IPv4 tölurnar verða búnar árið 2012,“ segir í skýrslunni. Fram kemur að meðal yfirlýstra markmiða aðildarríkja OECD sé að ýta undir upptöku næstu kynslóðar samskiptatækni á Netinu, sem og margra annarra landa sem standi utan samtakanna. Fram kemur að í byrjun þessa árs hafi einungis 5,5 prósent staðbundinna tölvuneta ráðið við netumferð af IPv6 staðli, þó svo að eitt af hverjum fimm fjarskiptanetum styðji staðalinn. Tæki og tölvur í notkun sem styðja staðalinn eru þó í miklum meirihluta, eða yfir 90 prósent. OECD beinir því til ríkisstjórna að starfa með fyrirtækjum í einkageira og öðrum hlutaðeigandi til að styðja við hraða upptöku nýs samskiptastaðals á netinu og gæta að mögulegum „flöskuhálsum“ sem komið gætu upp í innleiðingarferlinu.
Mest lesið Vill mikilvæga herstöð aftur og hótar Afgönum öllu illu Erlent Austurríki hvetur ríki til að draga sig ekki úr Eurovison Erlent Hyggst gera tilraun með lögregludróna í héraði Innlent Þrjátíu handteknir í óeirðum í Hollandi Erlent Efast um að olíuleit beri árangur Innlent Grænlendingar ná ekki að klára hvalveiðikvóta Erlent Skorradalshreppur og Borgarbyggð sameinast Innlent Telur áform ráðherra vanhugsuð Innlent Sænskur sjúkraflutningamaður myrtur í útkalli Erlent Líkamsárás í Hafnarfirði og maður með sveðju í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Telur áform ráðherra vanhugsuð Líkamsárás í Hafnarfirði og maður með sveðju í Kópavogi Hyggst gera tilraun með lögregludróna í héraði Skorradalshreppur og Borgarbyggð sameinast Efast um að olíuleit beri árangur Plokkarar verðlaunaðar á Selfossi Píratar taka upp formannsembætti Ýkt umræða um olíufund, netárás á flugvelli og bakgarðshlaup í beinni Nýjar framkvæmdir beina fólki að umdeildum gatnamótum Netárásin gæti haft áhrif á ferðir Icelandair Ráðherra til í umræðu um sumarfrí barna „Ísland á heima í hjarta Evrópu“ Allt að gerast í Rangárþingi hvað varðar lífsgæði íbúa Sniðgangan friðsæl leið til að mótmæla og sýna samstöðu „Skiljanlegt að mörgum blöskri að vita að hann gangi laus“ Fordæmalaust kynferðisbrotamál og viðbragð NATO við brölti Rússa Vill breyta nafni Viðreisnar Ýmsar leiðir fyrir lögreglu til að tryggja að endurkomubann virki Landsþing Viðreisnar hafið Peningakassa stolið af hóteli í miðbæ Reykjavíkur Breyta Hlöðunni í fræðslusetur fyrir 88 milljónir Ísland gegnir formennsku í Norræna blaðamannasambandinu Ísland rampar upp Úkraínu Drógu vélarvana togara í land „Það er mikil reiði í Grafarvoginum út af þessu“ Fékk ekkert símtal frá gömlu vinnufélögunum Leiðinlegt að óprúttnir aðilar skemmi fyrir heyrnarlausum Gervigreindarvélmenni mætt til starfa til að flokka rusl Segir lítið til í orðum ráðherra Gengur laus grunaður um barnaníð og meintar rangfærslur ráðherra Sjá meira