Erlent

Hrikaleg þrumuhljóð í eldfjallinu

Í nágrenni fjallsins þurfti fólk að setja upp grímur.
nordicphotos/AFP
Í nágrenni fjallsins þurfti fólk að setja upp grímur. nordicphotos/AFP
Eldfjallið Sinabung sendi frá sér væna spýju af kolsvartri ösku í gær, rúmri viku eftir að það rumskaði fyrst eftir að hafa legið í dvala í fjórar aldir. Krafturinn var meiri en áður hefur sést í fjallinu.

„Það heyrðust hrikaleg þrumuhljóð, eins og þúsund sprengjur væru að springa í einu,“ sagði Ita Seipu, 29 ára íbúi undir hlíðum fjallsins, sem hefur eins og þúsundir annarra íbúa dvalist í öruggri fjarlægð síðan byggðirnar voru rýmdar fyrir nærri tveimur vikum.

Fólkinu hefur verið komið fyrir ýmist í neyðarskýlum eða skólum og öðrum opinberum byggingum. Fjallið kom vísindamönnum í opna skjöldu þegar það tók upp á því að gjósa í lok ágúst. Um 130 virk eldfjöll eru í Indónesíu, þannig að misjafnlega vel hefur verið fylgst með landrisi og skjálftavirkni í þeim.

Ekki er vitað hvort fjallið á eftir að sýna af sér meiri ofsa næstu vikur eða mánuði eða hvort það mun mjatla úr sér gosefnum hægt og rólega, eða jafnvel lognast út af fljótlega.- gb



Fleiri fréttir

Sjá meira


×