Lífið

Myndaði sjónvarpsstjörnu í holræsum í San Francisco

Verkefni fyrir Motorola Sjónvarpsstjarnan Mike Rowe er í aðalhlutverki í nýrri herferð sem Ari Magg myndaði í San Francisco í desember á síðasta ári.mynd/ari Magg
Verkefni fyrir Motorola Sjónvarpsstjarnan Mike Rowe er í aðalhlutverki í nýrri herferð sem Ari Magg myndaði í San Francisco í desember á síðasta ári.mynd/ari Magg

„Ég er búinn að vera með umboðsmann í Bandaríkjunum sem ég hef unnið náið með í tvö til þrjú ár og þetta var fyrsta alvörubreikið,“ segir ljósmyndarinn Ari Magg.

Ari tók að sér verkefni fyrir bandaríska farsímaframleiðandann Motorola í desember, en myndirnar voru teknar í San Francisco í Bandaríkjunum rétt fyrir jól. Herferðin er nýfarin af stað og í aðalhlutverki er sjónvarpsstjarnan Mike Rowe, sem stýrir þáttunum Dirty Jobs. Þættirnir hafa verið sýndir á sjónvarpsstöðinni Discovery í fjögur ár og notið talsverðra vinsælda.

„Ég var meðal annars með hann í holræsum borgarinnar. Við vorum á þremur mismunandi stöðum í kringum San Francisco og voru tökustaðirnir mjög í ætt við þættina hans; skítugir og daunillir. Hann fílaði það í tætlur,“ segir Ari um verkefnið. „Myndirnar eru í mínum anda. Ég naut mín vel og hafði nokkuð frjálsar hendur í tökunum miðað við það sem gengur og gerist í verkefnum af þessari stærðargráðu.“

Auglýsingarnar eru meðal annars fyrir Motorola Brute og I1 síma og verða sýnilegar um gjörvöll Bandaríkin á risavöxnum skiltum, í tímaritum, blöðum og í verslunum Sprint, sem selja Motorola-síma. Ari hefur unnið að því að koma sér á framfæri í New York undanfarin ár og játar að púlið sé nú að skila sér. „Þetta er fyrsta alvöruverkefnið. Meistaradeildin,“ segir hann í léttum dúr. „Ég er búinn að vera að vinna mjög markvisst að þessu í þónokkurn tíma og núna er loksins eitthvað almennilegt að gerast. Þetta er erfiður markaður og það tekur tíma að ná árangri.“

Ari lofar samstarfið við Mike Rowe, sem hefur starfað lengi í bandarísku sjónvarpi, bæði sem þáttastjórnandi og rödd ýmissa þátta, þar á meðal upphafsrödd World News á sjónvarpsstöðinni ABC.

„Hann hefur mjög sterka og þægilega nærveru,“ segir Ari og neitar því að hann sé með nokkurs konar stjörnustæla. „Hann er ótrúlega viðkunnanlegur, í raun bara alveg eins og hann kemur fyrir í þessum þáttum.“

atlifannar@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.