Meiri líkur á greiðslufalli 17. janúar 2010 18:58
Þorvaldur Gylfason, prófessor í hagfræði, segir að horfurnar í efnahagsmálum þjóðarinnar séu mun dekkri en fyrir einu og hálfu ári þegar Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn kom hingað fyrst. Hann segir að líkur á greiðslufalli ríkissjóðs séu mun meiri núna en þá. Þorvaldur var gestur Sigurjóns Egilssonar í útvarpsþættinum Sprengisandi á Bylgjunni fyrr í dag. Hann sagði í þættinum að horfurnar í þjóðarbúskapnum væru miklu mun dekkri núna heldur en fyrir einu og hálfu ári síðan þegar Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn kom hingað fyrst eftir bankahrunið. Það væri annars vegar vegna þess að Seðlabankinn hefði metið erlendar skuldir þjóðarbúsins miklu mun minni en þær væru í reynd. Þá sagði hann líkurnar á greiðslufalli raunverulegar í dag, en hann sjálfur hefði talið slíkt óhugsandi fyrir einu og hálfu ári.) „Horfurnar eru mun dekkri en þær voru þegar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins kom hingað fyrst. Til þess liggja nokkrar ástæður. Ein er sú að Seðlabanki Íslands vanmat erlendir skuldir þjóðarbússins sem reyndust vera næstum því tvisvar sinnum meiri miðað við landsframleiðslu en talið var í upphafi," sagði Þorvaldur, en hann var einn umsækjenda um stöðu seðlabankastjóra. Hann sagði að önnur ástæða væri sú að stjórnvöld hefðu vanrækt að taka stöðu með almenningi og tala skýrt um að þeir sem ábyrgð bæru á hruninu þyrftu að sæta ábyrgð. Af þeirri ástæðu myndi þjóðin fella Icesave í þjóðaratkvæðagreiðslu, en tafir lausn Icesave hefðu haft mjög slæmar afleiðingar. „Og þess vegna er það svo að segja gefið fyrir fram að Icesave samkomulagið verði fellt í þjóðaratkvæðagreiðslunni," sagði hagfræðiprófessorinn. Þorvaldur sagði að uppgjör við hrunnið hefði gengið of hægt meðal annars vegna þess að stjórnvöld hefðu haldið rangt á spilunum. „Rústabjörgunin hefur gengið alltof hægt og illa því að tíminn og kraftarnir hafa farið í tóma vitleysu."
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Innlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Erlent Fleiri fréttir „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Sjá meira