Innlent

Litháar víkja úr dómsal í mansalsmáli

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Litháarnir sem ákærðir eru fyrir aðild að mansali í máli 19 ára stúlku munu þurfa að víkja úr dómsal á meðan að stúlkan ber vitni gegn þeim, samkvæmt úrskurði Hæstaréttar á föstudaginn.

Ákæruvaldið krafðist þess að mennirnir vikju úr dómsal á meðan að stúlkan bæri vitni. Héraðsdómur féllst á þá kröfu en verjandi Litháanna kærði úrskurðinn til Hæstaréttar. Meirihluti Hæstaréttar staðfesti úrskurð Héraðsdóms, en Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttardómari skilaði sératkvæði.

Mál stúlkunnar hafa verið töluvert til umfjöllunar að undanförnu en hún mun hafa verið svipt frelsi og neydd til að stunda vændi í heimalandi sínu áður en hún var send til Íslands með fölsuð skilríki 9. október í fyrra.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×