Innlent

Verða að sleppa til að bjarga stofninum

Með stórlaxi er átt við lax sem dvelur tvö ár í sjó. Miðað er við þá sem eru lengri en 70 cm eða þyngri en 3,5 kg. mynd/kristín eva
Með stórlaxi er átt við lax sem dvelur tvö ár í sjó. Miðað er við þá sem eru lengri en 70 cm eða þyngri en 3,5 kg. mynd/kristín eva
Stórlaxi hefur fækkað gífurlega í ám landsins á undanförnum árum. Veiðimálastofnun hvatti veiðimenn til þess að hlífa stórlaxi í byrjun veiðitímabilsins sökum fækkunarinnar, en stofninn er enn í hættu. Fækkunina má rekja til erfiðra aðstæðna á uppeldisslóðum hans í hafinu og hefur þetta ástand varað í tvo áratugi.

Guðni Guðbergsson, fiskifræðingur og sviðsstjóri hjá Veiðimálastofnun, segir að fyrir 1980 hafi hlutfall stórlaxa í ám landsins verið svipað og þeirra sem dvöldu eitt ár í sjó. „1979 var mjög kalt ár og laxastofninn á Íslandi tók mikið bakslag,“ segir Guðni. „Eftir 1985 tóku árnar við sér aftur og dánartala í sjó lækkaði – en þá fjölgaði eins árs löxum mun meira heldur en hinum.“

Veiðimálastofnun hvetur veiðimenn til þess að hlífa stórlöxunum með það að takmarki að auka hlutfall þeirra. Sigurður Guðjónsson, forstjóri Veiðimálastofnunar, segir í tilkynningu á heimasíðu Veiðimálastofnunar að jákvæð viðbrögð veiðimanna við ákallinu hafi ekki látið á sér standa. Þó hafi einhver gagnrýni borist varðandi tilkynningu um minnkandi hlutfall stórlaxa í Blöndu. Þórarinn Sigþórsson, tannlæknir og áhugalaxveiðimaður, er ósammála Veiðimálastofnun og segir nóg af stórlaxi vera í ánni.

„Það eru engir teljarar í Blöndu, svo veiðitölur verður líka að leggja til grundvallar,“ segir Þórarinn. „Það getur ekki verið vitrænt að finna út stofnstærð fiska með hlutfallsreikningi.“

Guðni segir við þessu að málið sé vissulega flókið og erfitt sé að spá fyrir um framtíðina, en staðreyndin sé sú að hlutfall stórlaxa hafi farið minnkandi á undanförnum árum og fari enn. „Töluleg þróun sýnir fram á að tala stórlaxa gæti verið komin niður í núll í kringum 2020,“ segir hann. „En vissulega eru málin aðeins flóknari en svo.“

Guðni segir veiðihlutfall á stórlöxum vera hærra heldur en hjá þeim minni og það eina sem Veiðimálastofnun geti gert til þess að hafa áhrif á þróunina sé að biðja veiðimenn um að hætta að leggja ofan á náttúrulega dánartölu stórlaxa, sem nú þegar sé of há.sunna@frettabladid.is



Fleiri fréttir

Sjá meira


×