Innlent

Þrjár úðamyndir í undirgöng

Mynd úr safni.
Mynd úr safni.

Tæplega þrítugur karlmaður hefur verið ákærður fyrir að úða með úðabrúsum á vegg í undirgöngum undir Miklubraut við Lönguhlíð í Reykjavík.

Maðurinn úðaði í ágúst á síðasta ári stóra mynd í ljósbláum lit af andliti og hálsi manns og textanum „OH ÉG ER STERKUR" fyrir framan andlitið. Aðra minni mynd úðaði maðurinn af augum, nefi og munni manns með svörtum og bláum útlínum og gulum lit að innan, og textanum „Yo HOHies" fyrir ofan með rauðum lit.

Loks úðaði hann risastóra mynd af þremur fígúrum og tveimur táknum fyrir aftan þær í svörtum og bláum litum. Reykjavíkurborg krefur manninn um skaðabætur.- jss




Fleiri fréttir

Sjá meira


×