Ríkisendurskoðandi: Bréf Álfheiðar ólíðandi 7. apríl 2010 10:35 Steingrímur Ari Arason og Álfheiður Ingadóttir.
Sveinn Arason, ríkisendurskoðandi, segir með öllu ólíðandi að stjórnendur ríkisstofnanna geti átt á hættu að vera sakaðir um að hafa brotið gegn góðum starfsháttum og hollustu- og trúnaðarskyldum sínum með því einu að leita ráða hjá Ríkisendurskoðun. Þar vísar Sveinn til bréfs sem Álfheiður Ingadóttir, heilbrigðisráðherra, sendi Steingrími Ara Arasyni, forstjóra Sjúkratrygginga Íslands, nýverið þar sem fram kemur að hún hyggst áminna hann fyrir brot á almennum starfsskyldum ríkisstarfsmanna. Forsaga málsins er sú að Steingrímur leitaði til ríkisendurskoðanda í kjölfar þess að ráðherra setti reglugerð um þátttöku sjúkratrygginga í tannlækninga- og tannréttingakostnaði. Í bréfi til Steingríms segist Álfheiður telja að honum hefði borið að leita fyrst til ráðuneytis eða ráðherra. „Með því að leita ekki beint til ráðuneytisins hafir þú brotið gegn góðum starfsháttum og hollustu- og trúnaðarskyldum þínum," segir Álfheiður meðal annars. Sjálfur hefur Steingrímur sagt að bréfið hafi komið honum í opna skjöldu. Ríkisendurskoðandi hefur sent Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur, forseta Alþingis, bréf vegna málsins. Sveinn segir ekkert óeðlilegt við það að stjórnendur ríkisstofnana leiti ráða og upplýsinga hjá Ríkisendurskoðun um hver þau mál sem fjalla um meðferða og ráðstöfun á ríkisfé. Hann gerir því alvarlegar athugasemdir við bréf Álfheiðar til Steingríms. Eðlileg samskipti „Í símtali mínu við forstjóra Sjúkratrygginga Íslands ræddum við einkum um hvaða fjárhagslegu skilyrði væru nauðsynlegt að setja í tengslum við þátttöku ríkissjóðs í kostnaði skv. reglugerðinni, enda ekki að finna leiðsögn í því efni í reglugerðinni sjálfri. Gerði hann m.a. grein fyrir því að fyrirhugaður væri fundur með ráðuneytinu um fyrrnefnda reglugerð og kvaðst vilja afla upplýsinga vegna hans," segir í bréfi Sveins. Hann segir að um hafi verið að ræða eðlileg og alvanaleg samskipti milli forstjóra ríkisstofnunar og Ríkisendurskoðunar. „Það er að mínu mati með öllu ólíðandi að stjórnendur ríkisstofnana geti átt á hættu að vera sakaðir um að hafa „brotið gegn góðum starfsháttum og hollustu- og trúnaðarskyldum" sínum með því einu að leita ráða hjá Ríkisendurskoðun um fjárreiðutengd málefni. Með vísan til þessa tel ég nauðsynlegt að gera alvarlegar athugasemdir við þær röksemdir sem heilbrigðisráðherra beitir í umræddu bréfi," segir Sveinn. Bréf hans til forseta Alþingis er hægt að lesa hér.
Tengdar fréttir Ráðherra áminnir forstjóra Sjúkratrygginga Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra hefur í hyggju að áminna Steingrím Ara Arason forstjóra Sjúkratrygginga Íslands fyrir brot á almennum starfsskyldum ríkisstarfsmanna samkvæmt lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisisins. Forsaga málsins er sú að Steingrímur leitaði til ríkisendurskoðanda í kjölfar þess að ráðherra setti reglugerð um þáttöku sjúkratrygginga í tannlækninga- og tannréttingakostnaði. 3. apríl 2010 13:51 Mest lesið Vaktin: Tillagan samþykkt og annarri umræðu um veiðigjöld lokið Innlent „Hann er að eigna sér eitthvað sem hann á ekki“ Innlent Fordæmalaus ákvörðun sem gæti breytt Alþingi til framtíðar Innlent Vændiskaupendur séu oftast fjölskyldufeður á leið til vinnu eða fundar Innlent Lögregla rannsakar alvarlegt slys í Lágafellslaug Innlent Velti bílnum við Fjarðarhraun Innlent Hóta að loka svæðinu við Seljalandsfoss Innlent Krefjast bóta verði ekki fallið frá áformum um skólaþorp Innlent Lögregla rannsakar slys í sundlauginni í Stykkishólmi Innlent Kristrún fái ef til vill að bragða á eigin meðali fyrr en síðar Innlent Fleiri fréttir Árekstur bíls og vespu á Hafnarfjarðarvegi Sögulegur dagur á Alþingi: Lýðræðisákvæði eða kjarnorkusprengja? Varðskipið Þór heldur heim frá Noregi í næstu viku Frumvarpið komið yfir erfiðasta hjallann en gæti átt nóg eftir Einn handtekinn í mansalsrannsókn lögreglunnar Vændiskaupendur séu oftast fjölskyldufeður á leið til vinnu eða fundar Lögregla rannsakar slys í sundlauginni í Stykkishólmi Kristrún fái ef til vill að bragða á eigin meðali fyrr en síðar Hóta að loka svæðinu við Seljalandsfoss „Hann er að eigna sér eitthvað sem hann á ekki“ „Hræðilegar fréttir fyrir lýðræðið á Íslandi“ Fordæmalaus ákvörðun sem gæti breytt Alþingi til framtíðar Dramatík á Alþingi og bílastæðablús hjá World Class Velti bílnum við Fjarðarhraun Flytja hluta starfsemi SAk vegna myglu Sjá ekki fyrir endann á umfangsmikilli rannsókn á fíkniefnaframleiðslu „Þetta er alvarlegur áfellisdómur yfir forsætisráðherra“ Vaktin: Tillagan samþykkt og annarri umræðu um veiðigjöld lokið Fundu 36 hugsanlega þolendur mansals á Íslandi í alþjóðlegri lögregluaðgerð „Eftir þetta hvassviðri í þinginu í gær heldur lífið áfram“ Tekjur af laxveiði í Borgarfirði eru vel yfir 50% af tekjum landbúnaðar á svæðinu Krefjast bóta verði ekki fallið frá áformum um skólaþorp Halda áfram að ræða veiðigjöldin Tekur önnur Íslendinga þátt í erfiðustu og lengstu kappreið í heimi Draga Dettifoss til Reykjavíkur Sleginn í andlitið með hnúajárni Lögregla rannsakar alvarlegt slys í Lágafellslaug Þingfundi frestað: Stjórnarandstaðan lagði fram „aðeins mýkri“ tillögu „Það er þarna sem rússneskir kafbátar fara í gegn“ Hélt á lokuðu umslagi Sjá meira
Ráðherra áminnir forstjóra Sjúkratrygginga Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra hefur í hyggju að áminna Steingrím Ara Arason forstjóra Sjúkratrygginga Íslands fyrir brot á almennum starfsskyldum ríkisstarfsmanna samkvæmt lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisisins. Forsaga málsins er sú að Steingrímur leitaði til ríkisendurskoðanda í kjölfar þess að ráðherra setti reglugerð um þáttöku sjúkratrygginga í tannlækninga- og tannréttingakostnaði. 3. apríl 2010 13:51