Innlent

Álagið á slysadeild gífurlegt, eldra fólk haldi sig heima

Ófeigur Þorgeirsson yfirlæknir á slysa- og bráðdeild Landspítalans segir að mikið hafi verið að gera á deildinni í dag vegna hálkunnar og álagið gífurlegt. Tilvikin þar sem um beinbrot sé að ræða eru orðin hátt í 60 talsins, brot sem rekja má til hálkunnar.

 

Þar sem útlit er fyrir áframhaldandi hálku í kvöld vill Ófeigur beina því til eldra fólks að það íhugi það gaumgæfilega áður en það fer úr húsi núna síðdegis og í kvöld.

 

„Álagið á okkur í morgun og frameftir degi hefur alveg keyrt um þverbak vegna hálkunnar og því viljum við beina þessum tilmælum til borgarbúa og þá einkum eldri borgara," segir Ófeigur.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×