Neituðu að vinna með fíkniefnahring 4. september 2010 05:00 Líkkistur búnar undir flutning. Líkin hafa verið flutt til heimalanda hinna myrtu, sem komu frá nokkrum löndum Mið- og Suður-Ameríku. Fréttablaðið/AP „
Þeir báðu okkur ekki um neitt, sögðu bara: Viljið þið vinna með okkur? Og enginn vildi vinna með þeim,“ sagði Luis Freddy Lala Pomavilla, átján ára piltur sem lifði af fjöldamorðin í Mexíkó fyrir tæpum tveimur vikum. Þessi neitun varð til þess að fíkniefnasmyglararnir tóku upp byssur sínar og skutu á hópinn, yfir sjötíu manns, með þeim afleiðingum að nánast allir létust samstundis. Þeir höfðu rænt fólkinu, sem allt var komið til Mexíkó frá ríkjum Suður- og Mið-Ameríku í þeirri von að komast yfir landamærin til Bandaríkjanna. Lala lá særður í hópnum smástund eftir að morðingjarnir voru farnir, stóð síðan upp og hélt gangandi af stað. Hann gekk alla nóttina, þar til hann loks rakst á hermenn sem komu honum til hjálpar. Áður hafði hann tvisvar rekist á fólk, sem vildi ekkert með hann hafa. Lala lýsti reynslu sinni í viðtali á sjónvarpsstöðinni GamaTV, sem líklega var tekið síðastliðinn sunnudag í flugvél á leið heim til Ekvadors, en þaðan er Lala. Hann særðist á hálsi, var með hálskraga og umbúðir á andliti. Hann átti greinilega erfitt með að tala. Hann sagðist vita um einn annan mann sem komst lífs af vegna þess að honum tókst að fela sig í trjágróðri. Hópurinn kom til Mexíkó frá Gvatemala, en fólkið var upphaflega ýmist frá Ekvador, San Salvador, Hondúras, Gvatemala eða Brasiíu. Lala notaði viðtalið til þess að vara fólk við því að leggja upp í ferð til Mexíkó í því skyni að komast upp á von og óvon til Bandaríkjanna. „Það er mikið af vondu fólki þarna sem hleypir manni ekki í gegn,“ sagði hann. Hann segir fólkið hafa verið í haldi mannræningjanna í eina nótt, bundið saman fjögur og fjögur. Daginn eftir voru þau drepin. „Þeir fleygðu okkur niður á grúfu og síðan heyrði ég skothljóðin,“ sagði Lala. „Ég heyrði þá skjóta vini mína og síðan varð ég fyrir skoti.“ Þeir sögðu ekkert til hvaða verka þeir ætluðu að fá fólkið, en stjórnvöld í Mexíkó telja að ætlunin hafi verið að fá fólkið til að smygla fíkniefnum til Bandaríkjanna. Alls fundust 72 lík á búgarði í Tamaulipas-héraði, skammt frá landamærum Bandaríkjanna, þriðjudaginn 24. ágúst eftir að Lala hafði tekist að láta vita af því sem gerðist. Morðin hafa líklega átt sér stað sunnudagskvöldið þar á undan. Þegar hermenn komu á staðinn kom til skotbardaga og féllu þar þrír úr röðum mannræningjanna og einn hermaður. Ofbeldi og átök tengd fíkniefnaglæpum í Mexíkó hafa kostað 28 þúsund manns lífið síðan Felipe Calderon, forseti landsins, ákvað árið 2006 að herða mjög baráttu stjórnvalda gegn fíkniefnahringjum. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Baldur til Eyja Innlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Viðskipti innlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent „Það er mikið verið að suða“ Innlent Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Innlent Fleiri fréttir Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Ásýnd Trump mun prýða viðhafnarútgáfu vegabréfsins Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Ákærður fyrir banatilræði við Trump Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Fjörutíu ár frá slysinu í Tsjernobyl: „Eins og heimurinn gæti snúið aftur til ársins 1986“ Trump segir komið að Írönum að hringja Sjö felldir í Úkraínu Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Orbán hættir á þingi Sjá meira