Félagsmálaráðuneytið deilir hart á yfirstjórn Sólheima 4. nóvember 2010 13:40 Guðbjartur Hannesson félags- og tryggingamálaráðherra.
Það er rangt að halda því fram að flutningur málefna fatlaðra til sveitarfélaga setji rekstur Sólheima í uppnám. Fjármunir til stofnunarinnar eru tryggðir og fráleitt að gefa það í skyn að mögulega þurfi að loka Sólheimum vegna yfirfærslunnar. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá félagsmálaráðuneytinu en undanfarið hefur verið fjallað í fjölmiðlum um framtíð Sólheima en Framkvæmdastjórn og fulltrúaráð Sólheima hafa sagt að með breytingunum bresti grundvöllur fyrir starfinu. Félagsmálaráðuneytið segir hinsvegar að skýrt sé kveðið á um stöðu sjálfseignarstofnana sem þjónusta fólk með fötlun í áætlun um flutning málefna fatlaðra til sveitarfélaga. „Rekstur Sólheima er tryggður, líkt og annarra sjálfseignarstofnana, þótt forsvarsmenn Sólheima hafi hafnað boði ráðuneytisins um endurnýjun þjónustusamnings," segir ennfremur. „Guðmundur Á. Pétursson, framkvæmdastjóri Sólheima í Grímsnesi, hefur að undanförnu komið fram í fjölmiðlum og látið að því liggja að áframhaldandi rekstur stofnunarinnar sé í hættu vegna flutnings málefna fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga um næstu áramót," segir í yfirlýsingunni. „Guðmundur segir réttilega að þjónustusamningur við stofnunina sé útrunninn en heldur því ranglega fram að ráðuneytið hafi hafnað umleitunum hans um endurnýjun samningsins." Þjónustusamningi hafnað en rekstrarfé tryggt Þá kemur fram að þjónustusamningur ráðuneytisins við Sólheima hafi runnið út í lok árs 2008. „Fljótlega hófust viðræður um endurnýjun hans og í maí 2009 gerði ráðuneytið forsvarsmönnum Sólheima formlegt boð um endurnýjun þjónustusamningsins. Viðræður um þetta leiddu ekki til samkomulags og öðru boði um sama efni sem ráðuneytið lagði fyrir fulltrúa Sólheima á fundi 21. desember 2009 var hafnað. Stofnunin hefur engu að síður fengið greitt rekstrarfé á fjárlögum samkvæmt ákvörðun Alþingis." „Verkefnisstjórn sem unnið hefur að flutningi málefna fatlaðra til sveitarfélaga hefur gert skýra áætlun um hvernig staðið skuli að flutningnum gagnvart sjálfseignarstofnunum sem þjónusta fólk með fötlun. Þessi áform voru kynnt forsvarsmönnum Sólheima á fundi ráðuneytisins með þeim þann 18. maí síðastliðinn. Ráðuneytið hélt annan fund með forsvarsmönnum Sólheima og annarra sjálfseignarstofnana 9. september síðastliðinn þar sem nákvæmlega var skýrt hvernig staðið verður að yfirfærslunni," segir einnig og bætt við: „Eins og fram kemur í samkomulagi ríkis og sveitarfélaga frá 6. júlí 2010 verða fjármunir til málaflokksins tryggðir með auknum tekjustofnum. Útsvarshlutfall sveitarfélaga verður hækkað um 1,2% gegn samsvarandi lækkun á tekjuskattshlutfalli ríkisins. Af þessu leiðir að einstök verkefni, þar með talinn rekstur sjálfseignarstofnana, verður ekki lengur á fjárlögum. Fyrir liggur að einstök sveitarfélög eða sveitarfélög sem sameinast um þjónustusvæði munu við tilfærsluna annast samninga við sjálfseignarstofnanir um rekstur þeirra. Árið 2011 verður byggt á fjárframlögum eins og þau voru ákveðin í fjárlögum ársins 2010."Segja ámælisvert að vekja ástæðulausan ótta hjá íbúum „Félags- og tryggingamálaráðuneytið átelur framgöngu framkvæmdastjóra Sólheima í fjölmiðlum þar sem hann hefur ítrekað gefið í skyn að þjónusta Sólheima verði skert og að heimilinu verði jafnvel lokað. Þetta er sérstaklega alvarlegt gagnvart íbúum Sólheima og aðstandendum þeirra þar sem yfirlýsingar af þessu tagi eru til þess fallnar að vekja með þeim ótta og óvissu um framtíð sína," segir einnig og sagt að rangt sé að halda því fram að flutningur málefna fatlaðra til sveitarfélaga setji rekstur Sólheima í uppnám. „Fjármunir til reksturs stofnunarinnar eru tryggðir við yfirfærsluna og fráleitt að gefa í skyn að mögulega þurfi að loka Sólheimum vegna yfirfærslunnar."
Mest lesið Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Innlent Fleiri fréttir Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Sjá meira