Segir störf sín fyrir Glitni ekki svipta sig sjálfstæði Sigríður Mogensen skrifar 4. nóvember 2010 12:10 Brynjar Níelsson.
Slitastjórn Glitnis sakar Brynjar Níelsson, formann Lögmannafélags Íslands, um að rjúfa trúnað með því að skrifa lögfræðiálit fyrir sjömenningana sem slitastjórnin hefur stefnt í New York. Brynjar neitar þessu og segist ekki missa sjálfstæði sitt sem lögmaður þó hann hafi áður starfað fyrir slitastjórnina. Slitastjórn Glitnis krefst þess að lögfræðiálit Brynjars Níelssonar, formanns Lögmannafélags Íslands, sem nýlega var lagt fyrir dómstól í New York verði ógilt, en álitið var lagt fram af lögmönnum stefndu. Slitastjórnin segir að hvorki hafi lögmenn stefndu né Brynjar sjálfur, upplýst dómstólinn um það að Brynjar hafi þangað til í júlí á þessu ári starfað sem ráðgjafi fyrir slitastjórnina. „Þó ég hafi starfað fyrir slitastjórn Glitnis missi ég ekki sjálfstæði mitt sem lögmaður. Ég er ekki að vinna neitt lögfræðiálit fyrir stefndu í þessu máli," segir Brynjar um stöðu sína í málinu. Brynjar segist einungis vera að andmæla skoðun slitastjórnarinnar, sem byggir á áliti forseta Lagadeildar HR, þess efnis að íslenskir dómstólar ráði ekki við málið. „Mér finnst afar sérkennilegt að það sé verið að rýra traust og trúverðugleika íslenska dómstóla úti í Bandaríkjunum, þar sem þetta er einfaldlega rangt. Ég sé enga ástæðu til þess að íslenskir dómstólar geti ekki ráðið við þetta mál, mál af þessu tagi hér eftir sem hingað til," segir hann. Brynjar segist einungis gefa yfirlýsingu þess efnis. Hann vinni ekki að öðru leyti fyrir sjömenningana sem slitastjórnin hefur stefnt í New York. „Ég tek enga afstöðu til þess hvort það kunni að vera önnur sjónarmið til að reka þetta mál í Bandaríkjunum," segir Brynjar að lokum.
Mest lesið Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Innlent Fleiri fréttir Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Sjá meira