Karl gerir aðra stórmynd með Bigelow 4. nóvember 2010 13:30 Samstarfsfélagarnir Karl og Kathryn með hin virtu Art Directors Guild verðlaun sem hann hlaut fyrir leikmyndina í Hurt Locker. Hún er eina konan sem hefur unnið Óskarsverðlaun fyrir leikstjórn. „
Þetta verður ekki mikið stærra en þetta," segir leikmyndahönnuðurinn Karl Júlíusson. Karl er á leiðinni til Suður-Ameríkulandanna Argentínu og Síle að gera leikmynd fyrir kvikmynd Óskarsverðlaunahafans Kathryn Bigelow. Myndin gengur undir vinnuheitinu Sleeping Dogs en Johnny Depp og Óskarsverðlaunahafinn Tom Hanks munu að öllum líkindum leika aðalhlutverkin. Bigelow hlaut Óskarinn á þessu ári fyrir kvikmyndina The Hurt Locker, sem Karl gerði einnig leikmyndina fyrir en þar breytti hann meðal annars Amman í Jórdaníu í Bagdad. Karl hlaut hin virtu Art Directors Guild verðlaun fyrir leikmyndina en það eru samtök leikmyndahönnuða í Bandaríkjunum. Karl varð að hafna tilboði frá góðvini sínum Baltasar Kormáki sem vildi fá hann í Contraband, Hollywood-myndina sína, með Mark Wahlberg og Kate Beckinsale. „Ég er bara að bíða eftir græna ljósinu og reikna með að fara af stað eftir tvær vikur. Ég hafði mikinn áhuga á að gera myndina með Balta en var því miður upptekinn," segir Karl í samtali við Fréttablaðið. Hann segir myndina vera samtímamynd, hún eigi að gerast á landamærasvæðinu hjá Paragvæ, Brasilíu og Argentínu og þetta verði svona „sígild og vitræn hasarmynd", eins og hann kemst að orði. Bigelow hefur nú töluvert meira á milli handanna eftir velgengni The Hurt Locker, sem hlaut alls sex Óskarsverðlaun, en hún var gerð fyrir aðeins ellefu milljónir dala. Upphæðin að þessu ætti því að vera töluvert hærri. Karl stígur þó varlega til jarðar, enda eru aðeins örfáir dagar síðan gjaldþrot kvikmyndarisans MGM var tilkynnt. „Hollywood-karlarnir fara að öllu með gát núna, menn eru varkárari en þeir hafa verið," segir Karl, sem reiknar með töluverðri vinnu í kringum myndina. „Það þarf alltaf að byggja eitthvað," segir hann en Bigelow hefur óskað eftir starfskröftum eiginkonu Karls, Áslaugar Konráðsdóttur, sem vann einnig að gerð The Hurt Locker. freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Borgarstjóri fer í saumana á kortafærslunum Innlent Ekið á hjólreiðamann Innlent Hafa frest til 12. maí til að koma í veg fyrir gagnaleka Innlent Salómonsdómur í deilu um pinnahælaför í parketi Innlent Ekkert vopnahlé heldur umfangsmiklar árásir í Rússlandi Erlent Trump hefur í hótunum við Evrópusambandið Erlent Veðurfræðingur spáir fínasta sumri Innlent Versti mögulegi tíminn fyrir netárás Innlent Babb í bátinn enn eina ferðina Innlent „Ég elska þennan flugvöll“ Innlent Fleiri fréttir Formaður Heimssýnar varar við ofbeldi gangi Ísland í ESB Stykkishólmur verður að vera annað og meira en svefnpláss Mikil tímamót fyrir Víkinga, byrja á bílastæðum „Ég kýs ekki þau sem vilja rífa höll barnanna“ Borgarstjóri fer í saumana á kortafærslunum Fundu snyrtistofuna við húsleit í kjölfar umferðareftirlits Tölvuþrjótar hrella háskólanemendur og Reform rúllar upp kosningum á Englandi Tilbúinn í umræður um hlaðvörpin en afdráttarlaus varðandi Rás 2 Versti mögulegi tíminn fyrir netárás Veðurfræðingur spáir fínasta sumri Leikskólagjöld fyrir fulla vistun hækkað um allt að 85 prósent Ekið á hjólreiðamann Sigríður hjólar í Hönnu Katrínu: Eini ráðherrann „sem vill hvorki sjá né heyra af atvinnulífinu“ Salómonsdómur í deilu um pinnahælaför í parketi „Þverhausar“ komi í veg fyrir umræðu um sameiningu fyrir vestan Fjölga stæðum fyrir deilibíla og rafhlaupahjól í Reykjavík Einn öskrandi og til ama og annar sofandi á gatnamótum Hafa frest til 12. maí til að koma í veg fyrir gagnaleka „Ég elska þennan flugvöll“ „Erfitt að sjá að þetta verði fyrstu kostir, kannski ef að allt fer í hnút“ Svona gekk að flytja vindmyllurnar Babb í bátinn enn eina ferðina „Við segjum stundum: Víkingur fékk okkur í afmælisgjöf“ Tveggja bíla árekstur á Reykjavíkurvegi „Við erum bara að mótmæla“ Fleiri vilja sjá Sönnu sem borgarstjóra en Björgu Milljónum í reiðufé stolið Milljóna þjófnaður úr spilakössum, flóknar meirihlutaviðræður og lóð gróðrarstöðvar til Víkings Bein útsending: Flugvöllurinn, flugið og flokkarnir „Og nei, Snorri Másson, þú ert ekki fórnarlambið hér“ Sjá meira