Hóta að beita hernum 16. júní 2010 07:22 Sendiherra Norður-Kóreu hjá Sameinuðu þjóðunum á blaðamannafundinum. Mynd/AP
Norður-Kóreumenn hóta að beita hervaldi ákveði Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna að refsa þeim fyrir að sökkva herskipi sunnanmanna fyrr á þessu ári. Alþjóðleg rannsókn leiddi í ljós að Norður-Kóreumenn sökktu 1200 tonna herskipi Suður-Kóreumanna sem kostaði 46 manns lífið í lok mars. Norðanmenn hafa allatíð neitað þessu og fullyrt að um uppspuna sé að ræða. Í síðasta mánuði færðist aukin spenna í samskipti ríkjanna og hefur viðskipta- og stjórnmálasamskiptum verið slitið og þá hafa hermenn verið settir í viðbragðsstöðu. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna fjallar nú deiluna en bæði ríkin hafa lagt fram gögn máli sínu til stuðnings. Ráðið hvatti deiluaðila í gær til að slíðra sverðin og grípa ekki til aðgerða sem komi til með að stigmagna deiluna. Í kjölfarið boðaði Sin Son-ho, sendiherra Norður-Kóreu hjá Sameinuðu þjóðunum, til blaðamannafundar í New York og sagði að yfirvöld í Norður-Kóreu komi ekki til með að taka því þegjandi ákveði Öryggisráðið að beita norðanmenn refsingum. Hann sagði að yfirvöld í Norður-Kóreu gætu þess í stað gripið til vopna og beitt hernum.
Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Erlent Fleiri fréttir Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Sjá meira