Erlent

Ellefu létust í flóðum í Frakklandi - margra saknað

Eftir flóðið. Íbúar virða fyrir sér eyðilegginguna.
Eftir flóðið. Íbúar virða fyrir sér eyðilegginguna.

Allt að ellefu eru látnir eftir mikil flóð í Suðaustur-Frakklandi í gær. Miklar rigningar hafa verið í fjallahéruðunum fyrir ofan frönsku rívíeruna síðasta sólarhring og hafa mörg þorp og bæir orðið illa úti í flóðum af þeirra völdum. Yfirvöld í héraðinu segja að um mestu vatnavexti sé að ræða í áratug.

Að minnsta kosti þúsund manns hafa þurft að yfirgefa heimili sín og leita skjóls í skólum og öðrum öruggum byggingum. Víðtækt rafmagnsleysi hefur fylgt í kjölfar flóðanna og að minnsta kosti 175 þúsund heimili eru nú án rafmagns. Þyrlur hafa verið notaðar til þess að bjarga fólki af þökum húsa sinna og á myndum má sjá þegar flóðvatnið hrífur með sér bifreiðar og önnur farartæki. Ellefu eru látnir eins og áður sagði og fjölda annara er saknað.

Þá hafa verið miklar truflanir á samgöngum í héraðinu og meðal annars eru 300 farþegar um borð í háhraðalest á milli Nice og Lille strandaglópar á miðri leið þar sem teinar lestarinnar eru á kafi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×