Bjórinn rýkur út í Suður-Afríku 13. júní 2010 18:45
Það er hátíð hjá eigendum öldurhúsa og veitingastaða í Suður-Afríku því sala á bjór hefur stóraukist í landinu í kjölfar heimsmeistaramótsins í knattspyrnu þar sem tugir þúsunda aðdáenda liðanna sötra mjöðinn á meðan þeir hvetja sína menn áfram. Hjá sönnum knattspyrnuaðdáaendum er það mikið verkefni og átak að fylgjast sínu liði keppa í þessari vinsælustu íþrótt heims. Má segja að fólk fari í gegnum allan tilfinningaskalann þessar níutíu mínútur og skammt er á milli hláturs og gráturs. Menn þurfa því að róa taugarnar og svala þorstanum með köldu öli og kráareigendur í Suður-Afríku njóta góðs af því á meðan HM stendur yfir. Allt frá fínum börum í Höfðaborg til ólöglegra knæpuhola í fátækrahverfum í nærsveitum eru allir að lyfta glasi fyrir fótboltahátíðinni og fá sér vitaskuld sopa í leiðinni. Bufi Zulu, sem rekur ólöglega knæpu í Soweto hverfinu í Jóhannesarborg, segist hafa keypt sérstaklega mikið af bjór vegna heimsmeistaramótsins. „Þeir vilja drekka og fagna á meðan þeir horfa á leikina og ef við vinnum þarf auðvitað líka að fagna. Þegar áfengisbúðirnar eru lokaðar græði ég enn meira," segir Bufi Zulu. Mótið stendur yfir í mánuð og nær hámarki í úrslitaleiknum á nýja Soccer City vellinum í Jóhannesarborg sem var sérstaklega byggður fyrir mótið. Leikvangurinn er oft kallaður "Calabash" þar sem hönnun hans líkir eftir engu öðru en hefðbundnum afrískum bruggpotti.
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Innlent Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Innlent Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Innlent Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Innlent Fleiri fréttir „Nú er komið að mér“ Ávarpar norsku þjóðina í fyrsta skipti sem konungur Milljónir í sekt fyrir að veðja á ræður forsetans Minnst þrjátíu og sjö látin eftir árás Rússa Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Sjá meira