Aðstoð ESB fer illa í fólk 5. júlí 2010 06:00 pearson Svarinn andstæðingur ESB segir Þjóðverja vera að átta sig á því að ráðamenn hafa svikið loforð sín. Fréttablaðið/AFP
Rétt rúmur helmingur Þjóðverja vill skipta evrunni út og taka þýska markið upp að nýju. Þetta eru niðurstöður könnunar alþjóðlega markaðsrannsóknarfyrirtækisins Ipsos. Einungis þrír af hverjum tíu sem þátt tóku í könnuninni vilja halda í evruna en átján prósent eru óákveðin hvað skuli gera. Þetta er þvert á niðurstöður kannana á vegum Evrópusambandsins (ESB) frá í febrúar, en þá voru 66 prósent Þjóðverja fylgjandi evruaðild. Ekki kemur fram í erlendum fjölmiðlum fyrir hvern Ipsos gerði könnunina. Helsta ástæða viðsnúningsins mun vera dýr fjárhagsstuðningur við þau evruríki sem standa illa, þar á meðal Grikkland. Þeir þátttakendur í könnun Ipsos sem vilja sjá markið á ný telja að kostnaðurinn muni falla á skattgreiðendur. Breska dagblaðið Telegraph segir þátttakendur í könnuninni sem séu komnir yfir miðjan aldur í meirihluta þeirra sem sakni þýska marksins, eða 56 prósent. Það hefur eftir Pearson lávarði, formanni breska Sjálfstæðisflokksins sem andsnúinn er aðild Bretlands að ESB, að fólk sé nú að átta sig á því að ráðamenn efnahagsbandalagsins hafi svikið sig.- jab
Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Erlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Fleiri fréttir Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Sjá meira