Harkar í Hollywood innan um atvinnulausa leikara 5. júlí 2010 09:00 Darri Ingólfsson fer með aðalhlutverkið í kvikmyndinni Boðbera sem frumsýnd verður á miðvikudaginn. fréttablaðið/vilhelm
Darri Ingólfsson fer með aðalhlutverkið í kvikmyndinni Boðbera sem frumsýnd verður á miðvikudaginn kemur. Darri hefur verið búsettur í Los Angeles undanfarið ár og upplifað ýmislegt skemmtilegt á þeim tíma. Darri nam leiklist í Arts Educational í London og útskrifaðist þaðan árið 2003 en dvaldi áfram í borginni eftir útskrift. „Ég held ég hafi verið hálf athyglissjúkur allt frá barnæsku og ég hef alltaf haft sterka þörf fyrir að tjá mig. Leiklistin er ágæt leið til að tjá sig, þó það séu ekki alltaf þínar eigin skoðanir sem þú ert að tjá. Nema kannski í þessu tilfelli, það er mjög margt í Boðbera sem endurspeglar mínar lífsskoðanir," segir Darri. Hann kynntist leikstjóra myndarinnar, Hjálmari Einarssyni, í Cannes árið 2006 en Darri segist hafa smyglað sér á hátíðina og alla leið í veislu á vegum tímaritsins Vanity Fair. „Vinur minn hafði ætlað fara ásamt nokkrum vinkonum sínum en forfallaðist og lét mig fá passann sinn í staðinn. Við ákváðum svo að smygla okkur inn í Vanity Fair veisluna, klæddum okkur í okkar fínasta púss og gengum beint inn á staðinn. Þetta var sama ár og Al Gore sýndi heimildarmyndina sína á Cannes og ég hitti hann þarna á dansgólfinu þar sem hann dansaði við eiginkonu sína." Darri hefur verið búsettur í Los Angeles undanfarna mánuði og segir hann borgina fulla af atvinnulausum leikurum, handritshöfundum og leikstjórum. „Þetta er búið að vera mikið ævintýri en líka rosalegt hark. Ég hef þurft að vinna við ýmislegt bara til að halda mér á floti og vann um tíma sem pylsusendill." Darri segist hafa hitt ótrúlegasta fólk í gegnum það starf og nefnir tónlistarmanninn Busta Rhymes í því samhengi. „Hann er orðinn feitur núna og var hálf dónalegur en ég klesst'ann þegar við kvöddumst," segir Darri og hlær. „Núna vinn ég sem þjónn á veitingastað á Sunset Strip. Staðurinn er beint á móti Marmont hótelinu og við fáum því mikið af þekktu fólki til okkar. Jason Segel úr How I Met Your Mother er til dæmis fastakúnni hjá okkur." Inntur eftir því hvort hann fái aldrei nóg af harkinu í borg englanna svarar hann því neitandi. „Maður er alltaf að upplifa eitthvað nýtt þannig að mér finnst þetta þess virði." -sm
Mest lesið Útför Gunnars Þórðarsonar Lífið Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Lífið Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Lífið Jóhanna Guðrún ólétt Lífið Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Lífið Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Lífið Heiður að endurvekja falda perlu Palla Tónlist Frægustu mágar landsins Lífið Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð Lífið Eurovision haldið í Burgas í Búlgaríu Tónlist Fleiri fréttir Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Usher þvertekur fyrir klónið „Það er engin skömm í krabbameininu“ Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Einstakt einbýlishús á 235 milljónir í Garðabæ Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Urður yfirgefur Kastljós Aubrey Plaza orðin mamma Lenti í mótorhjólaslysi daginn eftir gleðigönguna Raye og Jordan ástfangin í rússíbana Stjörnulífið: „Ég elska að vera hommalingur“ Perez Hilton þarf að fara í aðgerð eftir sjálfsskaða í beinu streymi á TikTok Þegar Davíð hafði afskipti af hjónabandi Ólafs og Dorritar Fræg feðgin snæddu kvöldmat á Horninu Sjá meira