Innlent

Ólína vill svör um milljarðaafskriftir sjávarútvegsfyrirtækis

Ólína Þorvarðardóttir vill svör um afskriftir.
Ólína Þorvarðardóttir vill svör um afskriftir.

Ólína Þorvarðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, hefur lagt fram fyrirspurn til efnahags- og viðskiptaráðherra um skuldastöðu íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja hjá innlendum lánastofnunum, þar á meðal í Byggðastofnun.

Tilefnið eru fréttir af milljarða afskriftum á skuldum smábátaútgerðar sem er í eigu Skinneyjar-Þinganess og Kastljós greindi upphaflega frá. Þar kom fram að Landsbankinn afskrifaði tæpa þrjá milljarða af skuldum fyrirtæksins.

Svipuð fyrirspurn hefur tvisvar verið lögð fram í þinginu áður, án þess að viðhlítandi svör hafi borist samkvæmt tilkynningu fra Ólínu.

Frestur ráðherra til að veita skriflegt svar er 2 vikur. Fyrirspurnirnar og greinagerð má sjá hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×