Innlent

Golfkúlum og grjóti kastað í lögreglumenn - myndskeið

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Golfkúlum og grjóti var kastað í lögreglumenn á Austurvelli í mótmælunum í kvöld. Þetta sagði Geir Jón Þórisson við fréttamann Stöðvar 2 og Vísis fyrir stundu. Eftir það hafi lögreglumennirnir ákveðið að taka upp hjálma til að skýla sér. Hann segir að grindurnar sem lögreglan setti upp hafi hjálpað lögreglunni mjög mikið.

Geir Jón segir að miðað við það hve mikill fjöldi hafi safnast saman í miðbænum hafi allt saman gengið ótrúlega vel fyrir sig. „Þeir sem standa að mótmælunum vilja ekkert ofbeldi og hafa passað það ótrúlega vel," sagði Geir Jón.

Hann segir að enginn hafi verið handtekinn en færa hafi þurft einn mótmælandann til fyrr í kvöld en honum hafi verið sleppt eftir það.

Horfa á viðtal við Geir Jón Þórisson.










Tengdar fréttir

Bein útsending frá Austurvelli hafin

Bein útsending frá stefnuræðu Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, og mótmælunum á Austurvelli er hafin á Vísir.is Mikill fjöldi er nú saman kominn Austurvelli en Jóhanna flytur ræður sína klukkan 19:50.

Geir Jón vonar að mótmælin fari vel fram

Geir Jón Þórisson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, vonar að fyrirhuguð mótmæli fyrir utan Alþingi í kvöld fari vel fram. Lögreglan er með mikinn viðbúnað á Austurvelli þar sem búist er við fjölmennum mótmælum í kvöld. Varnargirðing var reist um þinghúsið seinnipartinn.

Magna upp hávaðann með skemmtistaðagræjum

Þúsundir manna mótmæla nú við þinghúsið á Austurvelli. Forsvarsmenn skemmtistaðarins Hvítu Perlunnar í Austurstræti, þar sem English Pub var áður til húsa, taka virkan þátt í mótmælunum og magna upp hávaðann á Austurvelli. Fjölmörgum hátölurum skemmtistaðarins hefur verið komið fyrir í gluggum sem snúa að þinghúsinu.

Óeirðarlögreglumenn öllu viðbúnir

Fjöldi lögreglumanna er á Austurvelli í kvöld. Þeir héldu sig til hlés í byrjun. Nú hefur hins vegar að minnsta kosti einn mótmælandi verið handtekinn, samkvæmt heimildum fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis. Engar upplýsingar hafa borist um það hvers vegna hann var handtekinn. Þúsundir manna eru saman komnir í miðbænum. Sjaldan hafa fleiri verið þar á einum tíma ef undaskildir eru hátíðisdagar.

Bein útsending á Vísi frá Alþingi og Austurvelli

Bein útsending verður á Vísi í kvöld frá Alþingi og Austurvelli en Jóhanna Sigurðardóttir mun klukkan 19:50 flytja stefnuræðu forsætisráðherra. Boðað hefur verið til svokallaðra „Tunnumótmæla" á sama tíma á Austurvelli og á samskiptavefnum Facebook hafa um tvö þúsund manns boðað komu sína.

„Það er órói í samfélaginu“

„Það er órói í samfélaginu eins og við heyrum glöggt hér. Réttlát gremja og reiði er útbreidd vegna alls þess sem gerst hefur á Íslandi. Margir eiga um sárt að binda. Við skulum sína því skilning,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra.

Mikill viðbúnaður við Alþingi

Lögregla hefur komið upp varnargirðingu fyrir framan Alþingishúsið en boðað hefur verið til mótmæla klukkan hálf átta í kvöld fyrir utan þinghúsið þegar Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, flytur stefnuræðu sína. Boðað hefur verið til svokallaðra „Tunnumótmæla" á samskiptavefnum Facebook hafa tæplega 2300 manns boðað komu sína.

Lögreglumenn aðhafast ekki

Fjöldi lögreglumanna er á Austurvelli en þeir hafa allir haldið sig til hlés enn sem komið er. Það sem af er kvöldi hafa mótmælin farið friðsamlega fram. Flugeldum hefur verið skotið á loft og kveikt í blysum.

Jóhanna: Stendur ekki á mér að víkja

„Það hefur að sjálfsögðu ekki farið framhjá mér að ýmsir þingmenn kalla nú eftir kosningum. Muni nýtt þing, ný ríkisstjórn og tafarlausar kosningar auðvelda úrlausn þeirra viðamiklu verkefna sem framundan eru, þá mun ekki standa á mér að víkja til hliðar,“ sagði Jóhanna Siguðardóttur, forsætisráðherra, í stefnuræðu sinni á Alþingi í kvöld. „Ég og ríkisstjórn mín munum hins vegar ekki skorast undan því að ljúka þeim verkefnum sem við blasa, sé það vilji þingsins.“

Fleiri mótmæla í kvöld en á föstudag

Verulega hefur fjölgað á Austurvelli eftir því sem liðið hefur á kvöldið. Blaðamaður Vísis sem er á staðnum telur að fjöldinn sé meiri en var síðastliðinn föstudag. Búið er að skjóta úr nokkrum kúlublysum og málningu hefur verið skvett á Alþingishúsið.

Eiga að mæta með hávaðatól

Boðað hefur verið til mótmæla á Austurvelli klukkan 19.30 í kvöld. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra flytur stefnuræðu sína á sama tíma og er fólk hvatt til þess að mæta með stóra hljómgjafa til þess að „skapa réttan undirleik og umgjörð“ eins og segir á Facebook-síðu fyrir mótmælin sem ganga undir nafninu Tunnumótmælin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×