AGS á enga aðdáendur í Vinstri grænum 17. janúar 2010 12:43
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn á enga aðdáendur í Vinstri grænum segir Katrín Jakobsdóttir, varaformaður flokksins. Andstaða flokksins við inngöngu Íslands í Evrópusambandið var ítrekuð á flokkráðstefnu sem lauk í gær. Í ályktun flokksráðstefnu Vinstri grænna er meðal annars lýst yfir áhyggjum af stöðu fjölmiðla hér á landi. Þar segir að fjölmiðlum sé nú grímulaust beitt sem áróðurstækjum eigenda og meðal annars vísað til morgunblaðsins í því samhengi. Þá segir ennfremur að rekstur og tilgangur 365 miðla - sem rekur meðal annars Fréttastofu Stöðvar tvö og Vísis - sé illskiljanlegur í ljósi hrunsins og framtíð allra miðla óljós. Í ályktun flokkráðstefnunnar er andstaða flokksins við hugsanlega aðild Íslands að Evrópusambandinu ítrekuð og eru ráðherrar og þingmenn flokksins hvattir til að halda þessari stefnu á lofti. „Þetta er raunverulega ítrekun á stefnu sem sem lá þegar fyrir. Í samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er tekið sérstaklega fram að flokkarnir áskilji sér rétt til að berjast hvorir á sínum vettvangi," segir Katrín Jakobsdóttir, varaformaður Vinstri grænna. „Þarna er í raun og veru verið að brýna okkur í því sem þegar hefur legið fyrir og árétta afstöðuna í málinu." Katrín vísar því á bug að flokkurinn sé klofinn í veigamiklum málum eins og Icesave. „Það er eins með Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Ég myndi nú segja að hann ætti nú líklega enga aðdáendur í flokknum þrátt fyrir ólíkar nálganir. Ég held bara hreinlega í svona viðfangsmálum sé eðlilegt að fólk hafi að jafnaði ólíkar nálganir," segir Katrín.
Mest lesið Fjöldi fórnarlamba eftir skothríð og íkveikju í kirkju mormóna Erlent Skora á Snorra að gefa kost á sér Innlent Árásir stóðu yfir í rúma tólf tíma Erlent Bíll valt eftir flótta undan lögreglu og þrír slösuðust Innlent Banna dróna yfir Danmörku Erlent Með bílinn fullan af fíkniefnum Innlent Lögreglan með málið til rannsóknar Innlent Rándýr og stórbrotin afmæli hitta ekki í mark hjá krökkunum Innlent Rak frá Bretlandi til Íslands á einum mánuði Innlent Drukkinn ökumaður keyrði á þrjá bíla og reyndi að stinga af Innlent Fleiri fréttir „Virðist bitna á saklausum ferðamönnum“ „Ákveðinn miski“ að geta ekki treyst vatninu Flúði próflaus undan lögreglu með einum of marga farþega þegar bíllinn valt Umfangsmiklar árásir og símengað neysluvatn Báturinn áður sokkið í sömu höfn og án skýringar Drukkinn ökumaður keyrði á þrjá bíla og reyndi að stinga af Um 200 nemendur eru í lögreglunámi á Akureyri Skora á Snorra að gefa kost á sér Bíll valt eftir flótta undan lögreglu og þrír slösuðust Reiknað með afskiptum af öllum samkomum Vítisengla Lögreglan með málið til rannsóknar Áframhaldandi aðgerðir gegn Vítisenglum Geirfinnsmálið, orkuöflun, gjaldeyrishöftin og íslenskan á Sprengisandi Drógu aflvana bát í land í Neskaupstað Með bílinn fullan af fíkniefnum „Það verður boðið fram í nafni VG“ Loka aftur fyrir umferð á slóðum Vítisengla „Þjóðaröryggisráð er ekki upp á punt“ Rak frá Bretlandi til Íslands á einum mánuði Bátur sekkur við Hafnarfjarðarhöfn Ellilífeyrisþegar sá hópur sem hafi það einna best Rándýr og stórbrotin afmæli hitta ekki í mark hjá krökkunum Þór sækist eftir endurkjöri Furðar sig á þjóðaröryggisráði og rándýr barnaafmæli Aftur flagnar Vesturbæjarlaug: „Eins og hún sé með skallablett“ Þyrlan kölluð út vegna vélsleðaslyss á Langjökli „Gervigreind er líka fyrir heimilið“ Hringvegurinn opnaður á ný klukkan 17 Snæfellsnes orðið að vistvangi UNESCO „Stór húsnæðis- og efnahagspakki“ á leiðinni Sjá meira