Ástandið í borginni skelfilegt Óli Kristján Ármannsson og Klemens Ólafur Þrastarson skrifar 15. janúar 2010 06:00
Íslenska alþjóðabjörgunarsveitin hafði bjargað tveimur ungum konum og var að ná þeirri þriðju úr rústum matvörumarkaðar þegar blaðið náði tali af Lárusi Bjarnasyni, fjarskiptamanni, rétt fyrir klukkan átján að íslenskum tíma í gær. Konurnar voru ekki slasaðar, en þjáðust af vatnsskorti og fengu vökva í æð. „Ástandið hér er skelfilegt en við erum í nokkuð góðum gír," sagði Lárus Björnsson, fjarskiptamaður hjá Íslensku alþjóðabjörgunarsveitinni. „Við tókum við í [gær]morgun af sveit heimamanna sem hafði verið að störfum um nóttina," segir hann. Íslendingar á svæðinu eru alls 35 talsins og hafa sett upp búðir á flugvellinum í Port-au-Prince, höfuðborg Haítí. Þeir gera ráð fyrir að vera á staðnum í allt að sex sólarhringa í viðbót. Sveitin var í hópi þeirra björgunarsveita sem fyrstar komu á hamfarasvæðið í gær, en hinar eru frá Kína, Bandaríkjunum, og Belgíu. Hópar frá íslensku og bandarísku sveitunum voru þeir fyrstu til að hefja eiginleg björgunarstörf á svæðinu, en heimamenn sjá um skipulagningu. Konurnar fundust í rústum fjögurra hæða byggingar sem áður hýsti verslanamiðstöðvar á Caribbean Market. Um níu þúsund friðargæsluliðar Sameinuðu þjóðanna eru á Haítí og gæta þeir flugvallarsvæðisins. Nokkuð hefur borið á glæpum í kjölfar jarðskjálftanna og íslenska sveitin ætlar að biðja um að friðargæsluliðar fylgi henni við björgunarstörfin. „Okkur finnst við nú ekki að í mikilli hættu en til að forðast að mönnum líði illa er kannski betra að hafa einn eða tvo friðargæsluliða með í för," segir Lárus. Hann þakkar að lokum stuðning að heiman og biður að heilsa heim.
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Innlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Innlent Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Innlent Fleiri fréttir Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Sjá meira