Cole: Næsti stjóri verður að hafa trú á mér Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 10. júní 2010 09:22 Joe Cole á blaðamannafundinum í gær. Nordic Photos / Getty Images
Joe Cole segir að hann hafi ekki fengið þann stuðning sem hann hafi þurft á að halda hjá Chelsea á nýliðnu tímabili. Cole mun fara frá Chelsea í sumar þegar að samningur hans við félagið rennur út. Samningaviðræður hans við forráðamenn félagsins fóru út um þúfur og því var ákveðið að bjóða honum ekki nýjan samning. „Það sem ég þarf á að halda nú er knattspyrnustjóri sem hefur trú á mér," sagði Cole í gær. Hann minntist ekki á Carlo Ancelotti, núverandi stjóra Chelsea, sérstaklega en sagði að sér hefði liðið vel undir stjórn Jose Mourinho. „Þegar Jose var stjóri spilaði ég meira en Robben, Duff, Wright-Phillips, Mutu, Malouda og Guðjohnsen. Jose hafði mikla trú á mér og ég spilaði í öllum mikilvægu leikjunum." „Það var erfitt fyrir mig að byrja aftur á þessu tímabili eftir meiðslin þar sem ég spilaði mjög óreglulega. Mér fannst ég aftur ná mínu besta fram þegar sumir strákanna í liðinu fóru í janúar til að spila í Afríkukeppni landsliða. En þegar þeir komu til baka breytti stjórinn öllu í fyrra horf." „Maður þarf að spila reglulega eftir meiðsli og það fékk ég ekki að gera. Ég fékk kannski tíu eða tuttugu mínútur í leik og ég hugsaði með mér að ég yrði að gera eitthvað." „Það kom kannski einhverjum á óvart að ég væri að elta bolta niður í hornin, sérstaklega þegar við vorum búnir að vinna deildina. En ég varð að gera eitthvað og sýna Hr. Capello að ég væri leikfær."
Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Fyrrverandi þjálfari Liverpool látinn Enski boltinn „Hugmyndin var að verjast með fimm menn“ Enski boltinn Elskar að spila fyrir Moyes sem hefur endurvakið feril hans Enski boltinn Amorim lifir þökk sé rauða spjaldi Sánchez Enski boltinn Dagskráin í dag: Stórleikir á Englandi og í Bestu, Formúla 1, Red Zone og margt fleira Sport Sjáðu Berglindi Björgu verða markahæsta ásamt öllum hinum mörkum dagsins Íslenski boltinn Björn Borg tók of stóran skammt af eiturlyfjum Sport Logi Geirsson ætlar alla leið í MMA: „Hann peppar mig áfram“ Sport Topplið Juventus missteig sig Fótbolti Fleiri fréttir Hvort liðið ætlar að halda í við Liverpool? Elskar að spila fyrir Moyes sem hefur endurvakið feril hans „Hugmyndin var að verjast með fimm menn“ Fyrrverandi þjálfari Liverpool látinn „Auðvelt að gleðja stuðningsfólk okkar“ Gagnrýndi leikjaálagið eftir sigurinn gegn Everton Úlfarnir stigalausir í botnsætinu | Palace í Meistaradeildarsæti Amorim lifir þökk sé rauða spjaldi Sánchez Sjálfsmark bjargaði jafntefli í hús fyrir Tottenham Liverpool með fullt hús stiga Framlengir um fimm ár og snýr aftur á morgun Lítil hvíld hjá Man. City | Við ætlum í fjallgöngu Man. Utd fær tvo til baka: Amorim grínaðist með fundinn með Ratcliffe Gylfi skoraði í eina sigri Everton á Anfield á þessari öld Segir að United hafi keypt rangan markvörð: „Aldrei heyrt um hann“ Óttast að Amorim verði rekinn ef illa fer gegn Chelsea Potter undir mikilli pressu Wildcard hugleiðingar Fantasýn: Haaland inn, Salah út og bíða með Isak Fær nýjan þriggja ára samning þrátt fjögur töp í fyrstu fjórum leikjunum Fimm sigurmörk á síðustu sjö mínútunum Swansea gafst ekki upp og skaut Forest úr leik Slot skýtur á þá sem gagnrýna eyðslu Liverpool Ragnar við toppinn í Fantasy: „Er þetta ekki rólegasti tíminn fyrir rithöfunda?“ Brot af því besta úr DocZone: „Er þetta ekki hættulegt?“ Linsan datt út en varði samt tvö víti Hákon reyndist hetja Brentford Fær 54 milljónir í vikulaun en æfir einn og yfirgefinn Verður væntanlega ráðinn 89 dögum eftir að hann var rekinn City rak barþjón sem mætti í United-treyju í vinnuna „United er að keppa við hina Ferrari-bílana en með Skoda-vél“ Sjá meira