Fulltrúi ríkis í stjórn Arion skilar ekki ársreikningum 10. júní 2010 06:30
Fulltrúi Bankasýslu ríkisins í stjórn Arion banka á og gegnir stjórnarformennsku í eignarhaldsfélagi sem hefur aldrei skilað ársreikningi. Forstjóri Bankasýslunnar telur ekki tilefni til að endurskoða stjórnarsetu hans. Kristján Jóhannsson var skipaður í stjórn bankans í mars. Hann er lektor við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, sérfræðingur í fjármálum fyrirtækja og rekstrarhagfræði og fyrrverandi forstöðumaður Viðskiptafræðistofnunar. Kristján er eigandi og stjórnarformaður eignarhaldsfélagsins Akureyjar ehf., sem á 61 prósent í lyfjafyrirtækinu Icepharma í gegnum félagið Lyng ehf. Lyng tapaði rúmum 1,2 milljörðum króna árið 2008 og eiginfjárstaða þess var þá neikvæð um 1,1 milljarð. Akurey var stofnuð árið 2007 og hefur aldrei skilað ársreikningi. Kristján sagðist koma af fjöllum þegar Fréttablaðið hafði samband við hann í gær. „Ég þarf bara athuga hvort þú ert ekki að segja mér satt og ef þetta er svona að kippa því þá í lag. Það er ekkert sem stendur í vegi fyrir því að skila þessum reikningum ef þeir eru ekki inni," segir hann. Um handvömm hljóti að vera að ræða. Elín Jónsdóttir, forstjóri Bankasýslunnar, segir stöðuna ekki gefa tilefni til að endurskoða setu Kristjáns í stjórn Arion. „Ég skal ekki segja hvort það eru eðlilegar skýringar á þessu. Þetta er ekki eitt af því sem spurt er um eða ber á góma þegar stjórnarmenn eru valdir," segir hún. Hún segist ekki trúa öðru en að Kristján muni bæta snarlega úr þessum vanskilum. Fjármálaeftirlitið breytti í febrúar reglum um hæfismat stjórnarmanna í fjármálafyrirtækjum. Sett var á laggirnar ráðgjafanefnd sem á að fara yfir gögn um stjórnarmenn, funda með þeim og leggja fyrir þá spurningalista og skera í kjölfarið úr um hæfi þeirra. Matið stendur enn yfir fyrir nýja stjórn Arion, samkvæmt upplýsingum frá Fjármálaeftirlitinu, og ekki liggur fyrir hvenær því lýkur. Vanskil á ársreikningi teljast alvarlegt brot og geta varðað sektum upp að hálfri milljón.
Mest lesið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Innlent Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Innlent „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Innlent Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Innlent Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Innlent Bíll valt í Kópavogi Innlent Kristrún missti af fundi með Selenskí Erlent Tók í spaðann á Trump: „Hann er nú heillandi, karlinn“ Erlent Vilja ábendingar um „kettlingamyllur“ og síendurtekin got Innlent Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Innlent Fleiri fréttir „Menn eru alla vega að vinna með sömu tölu“ Sögulegur NATO-fundur, umræðumet í uppsiglingu og afmæli í Heiðmörk „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Bíll valt í Kópavogi Líkir veiðigjaldaáformum við sóvéska eignaupptöku Komu sextán dvalarleyfishöfum af Gasasvæðinu Heiðrún Lind fóðri málflutning með alvarlegum rangfærslum Sameiningarhugur á Vestfjörðum Rannsókn á andláti í Garðabæ lokið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Gæsluvarðhald aftur framlengt um fjórar vikur Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Lokanir á brúnni yfir Jökulsá í kvöld Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Læknasamningur gæti orðið hvati að oflækningum Sjúkratryggingar fagna skýrslu Ríkisendurskoðunar Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Benedikt nýr skólameistari VMA Meirihluti vill stöðva málþóf á Alþingi Vilja ábendingar um „kettlingamyllur“ og síendurtekin got Verður nýr skólameistari á Húsavík Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Skildi ekki hvers vegna kennarinn var ekki rekinn Ræddu veiðigjöldin til að ganga hálf fjögur Slagsmál á hóteli í miðborginni Margir í vandræðum vegna of skyggðra rúðna Tillögur um skattalækkanir felldar: Segir ótrúlegt að hlusta á rök „Skattfylkingarinnar“ Segja manninn hafa glímt við alvarleg veikindi Sjá meira