Innlent

Lýst eftir vitnum að íkveikju

Mynd/Pjetur
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir vitnum af því þegar reynt var að kveikja í möstrum vestan við Veðurstofu Íslands við Bústaðaveg í nótt.

Tilkynnt var um eld á fimmta tímanum en þegar komið var á vettvang logaði eldur í köplum í tveimur möstrum. Greiðlega gekk að ráða niðurlögum eldsins en skemmdir eru nokkrar. Ekki hafði tekist að kveikja í þriðja mastrinu en við það fannst eldfimur vökvi.

Lögreglan biður alla þá sem geta veitt upplýsingar um málið að hafa samband í síma 444-1000.




Tengdar fréttir

Skemmdir unnar á fjarskiptamöstrum

Grunur leikur á að skemmdarverk hafi verið unnin á rafköplum í fjarskiptamöstrum í grennd við Veðurstofuna við Bústaðaveg upp úr klukkan fjögur í nótt. Þar voru rafkaplar sviðnir með þeim afleiðingum að örbylgjusendingar með sjónvarpsefni féllu niður.

Spellvirkin hefðu getað rofið tengslin við umheiminn

Fjarskipti við umheiminn hefðu getað lamast að miklu leyti ef búnaður skemmdarvarga hefði virkað að fullu, þegar þeir reyndu að vinna skemmdarverk á fjarskiptamöstrum í grennd við Veðurstofuna við Búsataðaveg í nótt. Lögregla lítur málið mjög alvarlegum augum, því svona spellvirki þykja ganga hryðjuverkum næst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×