Innlent

Börn brutust inn

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í nótt tvo fjórtán ára pilta, vegna innbrota. Fyrst brutu þeir rúðu í Melabúðinni og reyndu að komast þar inn, en þjófavarnakerfi fór í gang og stökkti þeim á flótta.

Síðan brutust þeir inn í söluturninn  Texas við Vonarstræti, en voru gómaðir á leið þaðan.

Þeir voru með þýfi á sér og hafði þriðji aðillinn, nokkru eldri, slegist í hópinn, þegar lögreglu bar að. Lögregla kallaði út barnaverndaryfirvöld, sem fara nú með mál drengjanna, því þeir teljast ekki sakhæfir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×