Innlent

Siðareglur samþykktar í ríkisstjórn

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Forsætisráðherra og fjármálaráðherra kynntu frumvarpið í morgun. Mynd/ Anton.
Forsætisráðherra og fjármálaráðherra kynntu frumvarpið í morgun. Mynd/ Anton.
Ráðherrum og starfsmönnum ráðuneyta verða settar siðareglur samkvæmt frumvarpi sem forsætisráðherra og fjármálaráðherra kynntu á blaðamannafundi í Stjórnarráðinu í dag.

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagði í samtali við fréttamenn að frumvarpið yrði lagt fyrir Alþingi þegar það kæmi aftur saman eftir jólafrí. Jóhanna sagði að siðareglurnar sem væru í 10 greinum snertu hagsmunatengls, hegðun í störfum, ákvörðun um ráðstöfun fjármuna og fleira.

Frumvarpið var samþykkt í ríkisstjórn í morgun en ákvörðun um að setja siðareglurnar byggir á samstarfssáttmála ríkisstjórnarinnar frá því síðastliðið vor.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×