Breyta sögunni um meintan höfuðpaur 19. janúar 2010 05:00 í Héraðsdómi Þorgrímur Kolbeinsson og Jón Sveinbjörn Jónsson, ákærðir ásamt þremur öðrum fyrir smygl á amfetamíni, hittast í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Þeir sitja á milli Bjarna Haukssonar og Brynjars Níelssonar lögmanna.Fréttablaðið/GVA
Hluti þeirra sem ákærðir eru fyrir tilraun til að smygla tæpum fjórum kílóum af amfetamíni til landsins síðasta haust sneri við framburði sínum varðandi hlutdeild meints höfuðpaurs í málinu. Af fimm ákærðum í málinu neitar sá einn sök. Aðalmeðferð fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Loga Má Hermannssyni er gefið að sök að hafa skipulagt og fjármagnað innflutning á 3,9 kílóum af amfetamíni sem bárust til landsins með pósti frá Danmörku og voru sótt í tollafgreiðslu 7. september síðastliðinn. Þá er ákærður fyrir að skipuleggja verknaðinn Þorgrímur Kolbeinsson. Hann játar að hafa keypt fíkniefnin á brautarstöð í Kaupmannahöfn, búið þau til sendingar og póstlagt. Þorgrímur fékk Jón Sveinbjörn Jónsson til að sækja pakkann, en hann faldi svo sendinguna í Mosfellsbæ. Ytra hafði lögregla komist á snoðir um efnin. Gerviefni var sett í stað amfetamínsins og senditæki sett í pakkann. Mennirnir voru svo handteknir eftir að Þorsteinn Birgisson og Jóhann Páll Jóhannsson sóttu pakkann til Jóns Sveinbjarnar. Jóhann Páll er yngstur mannanna, 19 ára gamall, en hinir eru á þrítugsaldri, Logi 27 ára, Þorgrímur og Jón Sveinbjörn 25 ára og Þorsteinn 22 ára gamall. Allir hafa setið í gæsluvarðhaldi, flestir fram í október. Þorgrímur er sá eini sem er enn í gæsluvarðhaldi. Fram kom við málflutninginn að tengsl væru ekki á milli Þorgríms og Jóhanns Páls, en báðir hafi í yfirheyrslum og fyrir dómi borið um þátt Loga Más. Við aðalmeðferðina í gær kváðust báðir hafa hent á lofti orð lögreglumanna um mögulega aðkomu Loga og borið á hann glæpinn í von um að sleppa fyrr úr gæsluvarðhaldi. Logi neitar einn allri sök varðandi smyglið á amfetamíninu. Fyrir dómi kvað hann þá Þorgrím þó vera kunningja, enda hefði hann í nokkur skipti keypt af Þorgrími stera. Í ákæru er honum jafnframt gert að sæta upptöku á sterum sem fundust heima hjá honum. Logi sagði „hrikalegt“ að vera borinn sökum á þennan hátt og kvað einsýnt að þessir kunningjar hans hafi reynt að koma af sér sökum með því að bendla hann við málið. Fyrir það verði þeir að svara sjálfir. Hulda María Stefánsdóttir, fulltrúi Ríkissaksóknara, sagði viðsnúning í framburði ákærðu ótrúverðugan í meira lagi. Taldi hún fordæmi fyrir því að höfuðpaurarnir, Logi og Þorgrímur, fengju tveggja og hálfs árs fangelsi, aðrir eitt og hálft ár. olikr@frettabladid.is
Mest lesið Árásir stóðu yfir í rúma tólf tíma Erlent Með bílinn fullan af fíkniefnum Innlent Lögreglan með málið til rannsóknar Innlent Rak frá Bretlandi til Íslands á einum mánuði Innlent Rándýr og stórbrotin afmæli hitta ekki í mark hjá krökkunum Innlent Skora á Snorra að gefa kost á sér Innlent Segist hafa hafnað boði til einkaeyju Epsteins Erlent Bíll valt eftir flótta undan lögreglu og þrír slösuðust Innlent Ellilífeyrisþegar sá hópur sem hafi það einna best Innlent Loka aftur fyrir umferð á slóðum Vítisengla Innlent Fleiri fréttir Um 200 nemendur eru í lögreglunámi á Akureyri Skora á Snorra að gefa kost á sér Bíll valt eftir flótta undan lögreglu og þrír slösuðust Reiknað með afskiptum af öllum samkomum Vítisengla Lögreglan með málið til rannsóknar Áframhaldandi aðgerðir gegn Vítisenglum Geirfinnsmálið, orkuöflun, gjaldeyrishöftin og íslenskan á Sprengisandi Drógu aflvana bát í land í Neskaupstað Með bílinn fullan af fíkniefnum „Það verður boðið fram í nafni VG“ Loka aftur fyrir umferð á slóðum Vítisengla „Þjóðaröryggisráð er ekki upp á punt“ Rak frá Bretlandi til Íslands á einum mánuði Bátur sekkur við Hafnarfjarðarhöfn Ellilífeyrisþegar sá hópur sem hafi það einna best Rándýr og stórbrotin afmæli hitta ekki í mark hjá krökkunum Þór sækist eftir endurkjöri Furðar sig á þjóðaröryggisráði og rándýr barnaafmæli Aftur flagnar Vesturbæjarlaug: „Eins og hún sé með skallablett“ Þyrlan kölluð út vegna vélsleðaslyss á Langjökli „Gervigreind er líka fyrir heimilið“ Hringvegurinn opnaður á ný klukkan 17 Snæfellsnes orðið að vistvangi UNESCO „Stór húsnæðis- og efnahagspakki“ á leiðinni Afplána líklegast í fjögur til fimm ár á Litla Hrauni Þungir dómar ekki óvæntir og fyrsti vistvangur landsins Ferðamaður réðst á leiðsögukonu: „Ísland hefur brugðist mér“ Byrjað að moka í Hringveginn en talsverð vinna framundan Tíu gistu í fangageymslu og þar af tveir „peruölvaðir“ „Við þurfum ekki öll að fara á sjúkrahús“ Sjá meira