Kosningin í samræmi við reglur Jón Hákon Halldórsson skrifar 8. febrúar 2010 23:28 Stefán Pálsson segir að niðurstaða prófkjörsins standi. Mynd/ Anton. „
Niðurstaðan er sú að þessi kosning hafi verið í samræmi við reglur. Úrslitin standa því óbreytt," segir Stefán Pálsson, formaður kjörnefndar VG í Reykjavík. Þorleifur Gunnlaugsson, borgarfulltrúi og frambjóðandi í prófkjöri VG fyrir sveitastjórnarkosningarnar kærði utankjörfundarkosningu prófkjörsins. Í samtali við Vísi sagðist hann hafa vitneskju um það að ákveðnir frambjóðendur hefðu látið keyra atkvæðaseðla heim til kjósenda. Stefán segist gera ráð fyrir að í einhverjum tilvikum hafi þetta verið eins og Þorleifur lýsir því. „Reglurnar heimila það enda eru þær til að mynda hugsaðar ef um er að ræða veikt fólk sem á ekki heimangengt. Þá er nokkuð ljóst að það gæti þurft að keyra til þess kjörseðla og sækja," segir Stefán. Stefán segir að prófkjörsreglurnar séu þær sömu og voru í forvölunum hjá VG 2007 og 2009. Þær hafi ekki valdið ágreiningi þá. „Sem er ekki af því að menn hafi verið að haga sér eitthvað öðruvísi þá en núna, heldur kannski frekar vegna þess að það er mjótt á munum núna," segir Stefán. Stefán segir að persónulega hefði hann viljað sjá betri og skýrari reglur um póstkosningu. Hins vegar verði kjörnefnd að fara eftir þeim reglum sem VG í Reykjavík samþykki á félagsfundi. Hann eigi samt ekki von á því að kosið verði eftir þessum prófkjörsreglum aftur. Eins og fram hefur komið á Vísi í dag höfðu utankjörfundaratkvæðin ekki áhrif á röð sex efstu manna. Röð þeirra hefði því verið óbreytt þótt atkvæðin hefðu verið úrskurðuð ógild.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Erlent Fleiri fréttir Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Sjá meira