Innlent

Hvað eru þessir menn að tala um?

Hagvöxtur, ávöxtur og ávöxtun eru orð yfir gjörólík fyrirbæri, segir í kynningu frá Símenntunarstöðinni á Vesturlandi, um stutt námskeið, sem haldin verða á næstunni.

Þar verður fjallað um helstu hagfræðihugtök, sem ríða húsum í fjölmiðlum þessa dagana.

Og síðar segir í kynningunni: „Láttu sjá þig og þú munt detta mun sjaldnar út, yfir kvöldfréttunum."








Fleiri fréttir

Sjá meira


×