Innlent

Skattman berst við dönsk gengi

Dönsk skattayfirvöld hafa skorið upp herör gegn meðlimum í mótorhjólagengjum sem aka um með stolnar númeraplötur á fákum sínum. Það mun vera alþekkt bragð hjá meðlimum Hells Angels og Bandidos að skrúfa stolnar eða falsaðar númeraplötur á mótorhjólin sín til þess að komast undan því að borga skatta af tryllitækjunum.

Glæpamenn frá austur Evrópu sem hafa tekið sér bólfestu í Danmörku hafa líka komist upp á lagið með þetta en nú á að fara ítarlega í saumana á þessari iðju. Í fyrra gerðu yfirvöld 264 ökutæki, bíla og mótorhjól, upptæk hjá meðlimum samtakanna. Fjármálaráðherra Danmerkur segir þetta mikilvægan lið í að stemma stigu við gengjunum og minnir á að glæpaforinginn Al Capone í Chicago hafi ekki náðst fyrr en menn fóru að skoða skattaskýrslur hans.

Til stendur að herða viðurlög við skattaundanskotum af þessu tagi en í dag mega menn búast við 30 daga fangelsi verði þeir uppvísir að því að reyna að komast undan skattinum með þessum hætti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×