Norðlingaalda: Oddviti varar við einhliða friðlýsingu Kristján Már Unnarsson skrifar 13. september 2010 10:30
Oddviti Skeiða- og Gnúpverjahrepps varar við því að ríkisstjórnin reyni einhliða að friðlýsa Norðlingaöldu og hvetur til samkomulags. Hann telur að friðlýsing þurfi ekki að útiloka veituna umdeildu. Ríkisstjórnin hyggst stækka friðland Þjórsárvera þannig að það nái yfir fyrirhugað Norðlingaöldulón. Náttúruverndarlög heimila umhverfisráðherra að friðlýsa svæði en oddviti Skeiða- og Gnúpverjahrepps, Gunnar Örn Marteinsson, bendir á að friðlýsing þurfi að fara inn á skipulag, og sveitarfélög hafa skipulagsvaldið. Hann vill þó ekki fullyrða um hvort sveitarfélagið hafi synjunarvald um friðlýsingu. Gunnar Örn kveðst vona að það þurfi ekki að stilla þessu þannig upp að það séu annarsvegar sveitarfélögin og hins vegar ríkið. „Ég vona að við þurfum ekki að stilla þessu þannig upp, - og menn hljóta að tala sig niður á einhverja skynsamlega lausn í þessu," segir oddvitinn. Norðlingaölduveita er talin hagkvæmasti virkjunarkostur Landsvirkjunar, sem kosti fimmtán milljarða króna en gefi tvo til og tvo og hálfan miljarð króna í tekjur á ári. Oddvitinn segir að friðlýsing þurfi ekki að koma í veg fyrir veituna og bendir á að lagt sé til að stærra friðland Þjórsárvera nái yfir hluta af Kvíslaveitum, sem eru manngert svæði. Menn hljóti þar af leiðandi að gera ráð fyrir Kvíslaveitum í friðlandsskilmálum. Á sama hátt verði hægt að hafa Norðlingaölduveitu inni á friðlandi en hennar yrði þá geti í friðlandsskilmálum. Andstæðingar veitunnar benda á að Kvíslaveitur hafi þegar spillt Þjórsárverum og fossaröðinni fyrir neðan. En þarf þá ekki leggja af Kvíslaveitur? Gísli Már Gíslason, formaður Þjórsárveranefndar, kveðst ekki ætla að leggja slíkt til og Gunnar Örn oddviti kveðst telja að menn snúi ekki til baka með þá framkvæmd. Kvíslaveitur taka nú þegar 40 prósent af rennsli fossanna og því má spyrja hvort ekki þyrfti að opna flóðgáttir þeirra hluta úr sumri ef gefa ætti ferðamönnum kost á að sjá Dynk á ný í allri sinni dýrð. Helsti talsmaður stækkunar friðlandsins vill hins vegar að menn taki Norðlingaölduveitu endanlega af dagskrá, þar sem hún raski svæði sem í rammaáætlun hafi fengið hátt verndargildi. „Þá lenti þetta í hæstu flokkunum, varðandi náttúruverndargildi, og það er bara verið að raska því með þessu, fyrir tiltölulega litla orku og lítið afl sem fæst með þessu, - þó að það sé ódýrt," segir Gísli Már.
Tengdar fréttir Norðlingaalda: Vatn tekið af magnaðri fossaröð Norðlingaölduveita skerðir vatn á einhverri mögnuðustu fossaröð landsins. Landsvirkjunarmenn segja að lítill munur verði á fossunum yfir hásumarið en friðunarsinnar segja þá breytast í vatnslitla klettaveggi. 10. september 2010 17:00 Norðlingaalda: 80% eru ógrónir melar Áttatíu prósent af því landi sem fer undir Norðlingalón eru ógrónir melar, að mati Landsvirkjunar. Andstæðingar Norðlingaölduveitu segja Landsvirkjun hins vegar þegar búna að taka nóg af vatni Þjórsárvera. 10. september 2010 17:00 Norðlingaalda: Arðbærasta virkjunarkostinum varpað fyrir róða Með stækkun friðlands Þjórsávera, eins og ríkisstjórnin áformar, yrði Landsvirkjun af einum arðbærasta virkjunarkosti sínum, sem gæti skilað á þriðja milljarð króna í árlegar tekjur. 10. september 2010 17:00 Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Fleiri fréttir Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Sjá meira
Norðlingaalda: Vatn tekið af magnaðri fossaröð Norðlingaölduveita skerðir vatn á einhverri mögnuðustu fossaröð landsins. Landsvirkjunarmenn segja að lítill munur verði á fossunum yfir hásumarið en friðunarsinnar segja þá breytast í vatnslitla klettaveggi. 10. september 2010 17:00
Norðlingaalda: 80% eru ógrónir melar Áttatíu prósent af því landi sem fer undir Norðlingalón eru ógrónir melar, að mati Landsvirkjunar. Andstæðingar Norðlingaölduveitu segja Landsvirkjun hins vegar þegar búna að taka nóg af vatni Þjórsárvera. 10. september 2010 17:00
Norðlingaalda: Arðbærasta virkjunarkostinum varpað fyrir róða Með stækkun friðlands Þjórsávera, eins og ríkisstjórnin áformar, yrði Landsvirkjun af einum arðbærasta virkjunarkosti sínum, sem gæti skilað á þriðja milljarð króna í árlegar tekjur. 10. september 2010 17:00