Skólahreysti vettvangur nýrrar bíómyndar 13. september 2010 09:00 Margrét Örnólfsdóttir segir það ekkert óalgengt að krakkar sem njóta sín ekki í hefðbundnu skólastarfi blómstri í Skólahreysti. Keppni grunnskólabarna verður miðpunkturinn í nýrri unglingamynd sem Saga Film framleiðir.Fréttablaðið/Stefán
Unglingakeppnin Skólahreysti, þar sem grunnskólnemar landsins keppa í allskyns íþróttaþrautum, verður miðpunktur nýrrar íslenskra unglingamyndar sem framleiðslufyrirtækið Saga Film hyggst gera. Ragnar Agnarsson hefur verið ráðinn leikstjóri myndarinnar en Margrét Örnólfsdóttir hefur skilað inn fyrsta uppkastinu að handriti. Ragnar segir þetta ákaflega spennandi verkefni, vinnuheitið sé Steinn, sem er í höfuðið á aðalpersónunni. „Fyrsta uppkastið er alveg gríðarlega flott, þetta er unglingadrama og eins langt frá Ódáðahrauni og hugsast getur,“ segir Ragnar en hann vinnur einmitt að kvikmynd upp úr samnefndri bók Stefáns Mána. „Þegar maður er að stíga sín fyrstu skref í kvikmyndagerð þá er gott að prófa nokkrar tegundir af kvikmyndum og mér líst alveg rosalega vel á þetta.“ Margrét Örnólfsdóttir viðurkennir að hún hafi horft á þættina í sjónvarpi með öðru auganu. „En eftir að ég byrjaði á þessu verkefni hef ég kynnt mér þetta talsvert,“ segir Margrét en myndin fjallar um ungan dreng sem fer hressilega út af sporinu heima fyrir og er sendur í hálfgerða útlegð úti á landi til að kynnast sjálfum sér upp á nýtt. Þar kemst hann í kynni við hóp sem er sendur í Skólahreysti. Margrét er ekki alveg reiðubúin til að kvitta upp á að þetta sé íslenska útgáfan af Karate-Kid. „Ég hef aðeins rætt við aðstandendur Skólahreysti og þeir hafa sagt mér að þetta sé ekkert óalgengt, að krakkar sem finna sig ekki alveg í hefðbundnu skólastarfi blómstri í Skólahreysti.“ - fgg
Mest lesið Kjarnorkuverkfræði-draumurinn rætist í París Lífið Gugga gestur í afmælisboði Kanye West Lífið Jóhann Örn fulltrúi Íslands í Mr. Bear Europe Lífið „Hér er ég tólf árum seinna, enn að hugsa um þetta“ Tíska og hönnun Kvennatónlistarhátíð Rodrigo vekur athygli Tónlist Stjörnulífið: Halla og Eiður Smári ástfangin á Þingvöllum Lífið „Ég vil gera frábæra hluti eins og ég sé í sjónvarpinu“ Lífið Bylgjulestin lét sig ekki vanta í eina af stærstu veislum ársins á Þingvöllum Lífið samstarf Urður trúlofuð og mætt aftur á Instagram Lífið Þrastahreiður í Garðabæ í beinni Lífið Fleiri fréttir Athafnahjón selja sjarmerandi hús í Vesturbæ Ólík túlkun listamanna á Reykjavík í tvær aldir „Ég vil gera frábæra hluti eins og ég sé í sjónvarpinu“ Jóhann Örn fulltrúi Íslands í Mr. Bear Europe Þrastahreiður í Garðabæ í beinni Kjarnorkuverkfræði-draumurinn rætist í París Gugga gestur í afmælisboði Kanye West Söguleg skiltaskipti á Ölstofunni Urður trúlofuð og mætt aftur á Instagram „Grét meðan verið var að dæla í mig blóðinu” Fjárfestir og fyrirsæta selur útsýnisíbúð Útskiptin miklu og svikula elítan Stjörnulífið: Halla og Eiður Smári ástfangin á Þingvöllum Jökull í Kaleo kynnti nýju kærustuna Kúrekahattar, sólskinsbros og forsetahjón í banastuði á Þingvöllum „Mér finnst þetta nánast hafa komið fyrir einhvern annan en mig“ Frá Kalda bar í vín með Norah Jones, Jökli í Kaleo og Tony Parker „Á endanum snýst þetta um að giftast besta vini sínum“ Krakkatía vikunnar: Dorrit, fjallkonan og lítilmenni Blönduðu áður óséðu efni frá aldamótum við upphitunaratriðið Svona er stemningin á Þingvöllum í dag Fólk streymi inn í þjóðgarðinn í rjómablíðu Gull og gimsteinar leynast víða Nýir útvarpsþættir að norðan: „Ef eitthvað fer illa þá bara fer það illa“ Fréttatía vikunnar: Kæra, Hafþór og Florencia Anne Hathaway á von á sínu þriðja barni Bjórinn nefndur eftir lagi hljómsveitarinnar Kaleo Hilmir Snær og Vala í aðalhlutverkum í „öskugráum hjónaleik“ Búast við fimmtán gráðum og sól á Þingvöllum „Ég verð bara að gera það, hvort sem mér líkar betur eða verr“ Sjá meira