Lífið

Skólahreysti vettvangur nýrrar bíómyndar

Margrét Örnólfsdóttir segir það ekkert óalgengt að krakkar sem njóta sín ekki í hefðbundnu skólastarfi blómstri í Skólahreysti. Keppni grunnskólabarna verður miðpunkturinn í nýrri unglingamynd sem Saga Film framleiðir.Fréttablaðið/Stefán
Margrét Örnólfsdóttir segir það ekkert óalgengt að krakkar sem njóta sín ekki í hefðbundnu skólastarfi blómstri í Skólahreysti. Keppni grunnskólabarna verður miðpunkturinn í nýrri unglingamynd sem Saga Film framleiðir.Fréttablaðið/Stefán
Unglingakeppnin Skólahreysti, þar sem grunnskólnemar landsins keppa í allskyns íþróttaþrautum, verður miðpunktur nýrrar íslenskra unglingamyndar sem framleiðslufyrirtækið Saga Film hyggst gera.

Ragnar Agnarsson hefur verið ráðinn leikstjóri myndarinnar en Margrét Örnólfsdóttir hefur skilað inn fyrsta uppkastinu að handriti. Ragnar segir þetta ákaflega spennandi verkefni, vinnuheitið sé Steinn, sem er í höfuðið á aðalpersónunni. „Fyrsta uppkastið er alveg gríðarlega flott, þetta er unglingadrama og eins langt frá Ódáðahrauni og hugsast getur,“ segir Ragnar en hann vinnur einmitt að kvikmynd upp úr samnefndri bók Stefáns Mána. „Þegar maður er að stíga sín fyrstu skref í kvikmyndagerð þá er gott að prófa nokkrar tegundir af kvikmyndum og mér líst alveg rosalega vel á þetta.“

Margrét Örnólfsdóttir viðurkennir að hún hafi horft á þættina í sjónvarpi með öðru auganu. „En eftir að ég byrjaði á þessu verkefni hef ég kynnt mér þetta talsvert,“ segir Margrét en myndin fjallar um ungan dreng sem fer hressilega út af sporinu heima fyrir og er sendur í hálfgerða útlegð úti á landi til að kynnast sjálfum sér upp á nýtt. Þar kemst hann í kynni við hóp sem er sendur í Skólahreysti. Margrét er ekki alveg reiðubúin til að kvitta upp á að þetta sé íslenska útgáfan af Karate-Kid. „Ég hef aðeins rætt við aðstandendur Skólahreysti og þeir hafa sagt mér að þetta sé ekkert óalgengt, að krakkar sem finna sig ekki alveg í hefðbundnu skólastarfi blómstri í Skólahreysti.“ - fgg





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.