Innlent

Tuttugu ár liðin frá sjálfstæðisyfirlýsingu Litháa

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Jón Baldvin Hannibalsson var utanríkisráðherra þegar Íslendingar viðurkenndu sjálfstæði Litháen. GVA.
Jón Baldvin Hannibalsson var utanríkisráðherra þegar Íslendingar viðurkenndu sjálfstæði Litháen. GVA.
Eftir viku verða liðin 20 ár frá því að þingið í Litháen ákvað að lýsa yfir sjálfstæði ríkisins. Af því tilefni hefur utanríkismálanefnd Alþingis lagt fram tillögu um að Alþingi Íslendinga sendi Litháum sérstakar heillaóskir. Ísland var fyrsta þjóðin sem viðurkenndi sjálfstæði Litháen.

Í þingsályktunartillögu sem utanríkismálanefnd hefur lagt fyrir Alþingi segir að sjálfstæðisyfirlýsing Litháa hafi borið vott um hugrekki litháísku þjóðarinnar og markað tímamót í sjálfstæðisbaráttu Eystrasaltsríkjanna.

Það var í stjórnartíð Viðeyjarstjórnarinnar sem Íslendingar viðurkenndu sjálfstæði Litháen. Þá var Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×