Innlent

Innbrotsþjófur fluttur á slysadeild

Brotist var inn í fyrirtæki við Ármúla í Reykjavík í nótt. Lögregla fann þjófinn nokkru síðar og var hann skorinn á höndum eftir glerbrot. Hann var fyrst fluttur á slysadeild Landsspítalans, þar sem gert var að sárum hans, og síðan á lögreglustöðina til yfirheyrslu. Ekki liggur fyrir hverju hann stal.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×