Formaður Samtaka iðnaðarins vill þjóðstjórn 4. mars 2010 13:48 Helgi Magnússon var endurkjörinn formaður Samtaka iðnaðarins fyrr í dag.
Helgi Magnússon, formaður Samtaka iðnaðarins, vill að mynduð verði þjóðstjórn. Þjóðina skorti leiðtoga sem geta gefið raunhæfa von. Þetta var meðal þess sem kom fram í ræðu Helga á Iðnþingi í dag. „Það átti auðvitað að semja pólitískt vopnahlé þannig að allir gætu tekið höndum saman um að greiða úr hinum mikla vanda. Það hefði átt að koma á þjóðstjórn. Ég er enn þeirrar skoðunar að þjóðstjórn sé nú heppilegasta leiðin. Hvað gera þjóðir sem lenda í stríði? Þær víkja öllu til hliðar og fást við þá þjóðarvá sem stríðsrekstur er. Hrunið á Íslandi jafnast á við stríðsástand og kallar á úrræði til samræmis. Ég kenni engum stjórnmálaflokki umfram annan um það að ekki hefur verið efnt til þjóðstjórnar," sagði Helgi og bætti við að samstarf núverandi stjórnar og stjórnarandstöðu við lausn Icesave-málsins að undanförnu gefa von um að þverpólitísk samstaða sé hagsmunum þjóðarinnar til framdráttar. Hinn almenna borgara vantar leiðsögn, að mati Helga. „Fólk hefur ekki getað lyft séu upp úr farvegi vonbrigða og vonleysis eftir það sem gerðist. Okkur hefur skort leiðtoga, sem geta gefið raunhæfa von." Helgi sagði að á sama tíma blómstri niðurrifsöflin. Neikvæð umræða einkenni fjölmiðla, svonefnda bloggheima, álitsgjafa og sérfræðinga, jafnt raunverulega, tilbúna og sjálfskipaða. „Það er því miður frjór jarðvegur fyrir neikvæðni, hefnigirni, reiði og hatur sem alið er á af miklum móð."Segir stjórnvöld hræða erlenda fjárfesta Helgi sagði Samtök iðnaðarins hafa eindregið hvatt til þess að leið verðmætasköpunar væri rétta leiðin út úr efnahagsvanda Íslendinga í stað skattahækkunarleiðarinnar. „Framganga stjórnvalda hefur hins vegar verið þannig að hún hræðir erlenda fjárfesta frá þegar við þurfum mest á þeim að halda. Ítrekaðir tafaleikir umhverfisráðherra, m.a. vegna synjunar á staðfestingum í tengslum við virkjun neðri hluta Þjórsár og áður vegna svonefndrar suðvesturlínu á Reykjanesi, eru alvarleg dæmi um það. Hér er verið að knýja fram pólitíska stefnu sem gengur gegn hagsmunum þjóðarinnar og leiðir af sér minni hagvöxt en ella, meira atvinnuleysi, minni kaupmátt og verri stöðu ríkissjóðs og sveitarfélaga til að verja velferðar-og menntkerfin í landinu," sagði formaðurinn. Ennfremur sagði Helgi að skjót og skynsamleg nýting orkuauðlindanna, auk allra þeirra tækifæra sem unnt er að nýta með markvissum hætti, muni ráða úrslitum um endurreisn efnahagslífsins. Vill lækka skatta Helgi sagði að tækifærin væru allt í kringum okkur. Gamlar og nýjar stoðir atvinnulífsins gætu skilað okkur uppgangi að nýju. Leysa verði þessa krafta úr læðingi og rjúfa þá kyrrstöðu sem nú ríki. „Burt með gjaldeyrishöftin, áfram niður með vaxtastigið, lækkum skatta að nýju, nýtum vel það umsóknarferli að ESB sem nú er hafið, komum gjaldmiðlamálum Íslendinga í viðunandi farveg, vinnum á verðbólgunni og tryggjum stöðugleika. Þá styrkist krónan og við það batna lífskjörin."
Mest lesið „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Innlent Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Erlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Innlent Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Innlent Fleiri fréttir Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Ætla aftur að mála regnbogafánann Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Jón Ingvar vildi níutíu milljónir en fær ekki krónu Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Ríkisútvarpið braut ekki gegn siðareglum Trump, hóteldeilur og VestFest í kvöldfréttum Evrópusambandið sé verkfæri til að ná stöðugleika Stjórnandi drónans taldi sér ógnað og byssumaðurinn dæmdur Sjá meira