Stal punghlíf og axlaböndum 30. júlí 2010 06:00 Maðurinn hefur nokkrum sinnum áður komist í kast við lögin.Fréttablaðið/pjetur
Tvítugur Akureyringur hefur verið dæmdur í tíu mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir ótal afbrot framin á síðasta ári. Maðurinn var ákærður fyrir eina líkamsárás og gerðist einnig sekur um fjölda innbrota og þjófnaða. Ákærurnar á hendur manninum, sem síðan voru sameinaðar í eina, voru alls í 23 liðum. Ein var vegna líkamsárásar, en þá sló hann mann í jörðina og skallaði hann síðan með þeim afleiðingum að vör fórnarlambsins bólgnaði og það brotnaði upp úr fjórum tönnum þess. Hinir 22 liðirnir snúa að innbrotum og þjófnaði. Meðal þess sem maðurinn stal í þessi 22 skipti voru leikfangabílar, punghlíf, axlabönd, verkfæri, súrefnisgríma, gulur bolur, bónvél, mikið magn af gosdrykkjum, loðhúfa og ríflega 400 lítrar af bensíni og dísilolíu af hinum og þessum ökutækjum. Þá braust hann margsinnis inn í ísbíl á Akureyri og stal miklu magni af ís og öðrum kælivörum. Í nóvember í fyrra stal hann óskráðum bíl á Akureyri ásamt félögum sínum og þeir létu hann síðan flakka fram af hæð með því að festa bensíngjöfina niðri. Bíllinn gereyðilagðist. Maðurinn ungi játaði öll brot sín. Hann á nokkurn sakaferil að baki. - sh
Mest lesið Borgarstjóri kom af fjöllum Innlent Kona bankaði upp á en inn ruddust tveir menn Innlent Silja sagði spurningu Einars fáránlega: „Það þýðir ekki að bendla okkur við þetta“ Innlent „Bara djók sem gekk of langt“ Innlent „Lifði eins og greifi“ á kostnað bróður síns með því að svíkja út vörur í kaupfélaginu Innlent „Mean girls“-stemning í munnlegu prófi við HÍ Innlent Loka eftir 65 ár: „Koma hingað til að fá að knúsa okkur og kyssa“ Innlent Kosningaspá Vísis: Stöðugleiki að komast á fylgi í borginni Innlent „Skorri Mánasson“ sagður þjást af „source amnesia“ Innlent „Ég átta mig ekki á því hvað er verið að meina með því“ Innlent Fleiri fréttir Ofbeldi og gervigreind ekki vænlegt til árangurs „Ég átta mig ekki á því hvað er verið að meina með því“ Borgarstjóri kom af fjöllum „Lifði eins og greifi“ á kostnað bróður síns með því að svíkja út vörur í kaupfélaginu Húsráðandi mætti þjófnum eftir að hann fór inn og tók bíllyklana „Bara djók sem gekk of langt“ „Mean girls“-stemning í munnlegu prófi við HÍ Lesendur geta reiknað líkur á mögulegum meirihlutum Höfðu afskipti af ölvuðum ungmennum við Valhöll Loka eftir 65 ár: „Koma hingað til að fá að knúsa okkur og kyssa“ Heldur að Kristrún muni banna Björgu að líta til hægri Teknar úr umferð fyrr en til stóð Kona bankaði upp á en inn ruddust tveir menn Kosningaspá Vísis: Stöðugleiki að komast á fylgi í borginni Flugvöllur er ekki bara upp á punt Silja sagði spurningu Einars fáránlega: „Það þýðir ekki að bendla okkur við þetta“ Grunaður um líkamsárás og rán Listamannalaunakerfi í Reykjavík og róló með karakterum Guðrúnar Helgudóttur „Kristinn, þú ert bara fastur í rörsýn“ „Miðflokkurinn er ekki að sparka í neina krakka“ Tekist á um framkvæmdir við nýjan miðbæ í Hamraborg Sjálfstæðisflokkurinn stærstur og fylgi Miðflokks eykst á ný Kjósendur vilja helst þessa flokka í samstarf Rýnt í nýja könnun Svona voru kappræður oddvitanna á Sýn Kerfisvilla leiðrétt og spýtukofinn fær að standa Árasin einkenndist af talsverðri heift Segir Kristrúnu dreifa ósannindum um Sjálfstæðisflokkinn Tálbeitan sakfelld en aðrir dómar í Gufunesmáli mildaðir Hjólalest í skólann: Hundrað manns og hundur mættu í „hjólastrætó“ á Kársnesinu Sjá meira