Innlent

Gos gæti hafist á ný

Önnur sprungan er hætt að gjósa. Almannavarnir vara hinsvegar við að það gæti gosið aftur með litlum fyrirvara þrátt fyrir þögnina nú.
Önnur sprungan er hætt að gjósa. Almannavarnir vara hinsvegar við að það gæti gosið aftur með litlum fyrirvara þrátt fyrir þögnina nú. Mynd Haukur Snorrason

Gos í gossprungunni þar sem gosið hófst hefur dottið niður, en það getur auðveldlega hafist þar á ný og ber fólki að sýna varúð þegar náttúruöflin eru annars vegar segir í tilkynningu frá almannavörnum.

Skot kom í Hvanná í gærkvöldi og jókst bæði hiti og vatnsmagn í ánni. Sama má segja um Krossá. Miklar gufusprengingar voru í Hvannárgili þar sem vatn rennur niður drögin frá gosstöðvunum.

Enn er nokkuð um að ferðalangar ofmeti eigin getu og farartækja sinna og þurfi að leita ásjár björgunarsveita og lögreglu að mati almannavarna. Ítrekað er að þeir sem hyggjast fara að gosstöðvunum virði lokanir, fari um svæðið með gát og búi sig í samræmi við veðurspá og aðstæður á svæðinu.

Veðurstofan hefur gert sérstakar veðurspár fyrir Fimmvörðuháls og fyrir daginn í dag segir að á svæðinu verði suðlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s og dálítil snjókoma framan af morgni, en síðan stöku él.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×