Gífurlegur fjöldi kvenna í Kvennaathvarfinu Jón Hákon Halldórsson skrifar 8. apríl 2010 18:44
Alls dvöldu 118 og 60 börn í Kvennaathvarfinu í fyrra. Einungis einu sinni áður hafa verið skráðar fleiri konur í athvarfið. Aðsókn var mikil í Kvennaathvarfið á síðasta ári og einungis einu sinni í 27 ára sögu athvarfsins hafa verið skráðar fleiri komur. Veitt voru tæplega 500 ráðgjafar- og stuðningsviðtöl við konur sem ekki komu í dvöl. Það sem af er árinu hefur aðsókn í viðtöl enn stóraukist. Samkvæmt tilkynningu frá Kvennaathvarfinu hurfu erlendar konur þaðan í aðdraganda bankahrunsins. Um mitt síðasta ár fór þeim síðan að fjölga aftur. Árið 2009 voru konur af erlendum uppruna 37% dvalarkvenna, en höfðu verið rétt um helmingur dvalarkvenna árin á undan. Fjórðungur ofbeldismannanna eru af erlendum uppruna. Fækkun erlendra kvenna mánuðina eftir bankahrun má líklega skýra með auknu atvinnuleysi og óöryggi í samfélaginu. Um 40% fóru í sömu aðstæður Um 40% dvalarkvenna fóru aftur heim í sömu aðstæður og þær komu úr en sá hópur hefur sennilega aldrei verið jafn stór. Að auki luku 20% dvöl án þess að ljóst væri hvert þær færu sem er talsvert hærra hlutfall en undanfarin ár. Reynslan hefur sýnt okkur að talsverður hluti þess hóps fer aftur heim til ofbeldismannsins. Því má reikna með að a.m.k. helmingur dvalarkvenna hafi farið aftur heim í óbreyttar aðstæður og vekur það áhyggjur. Konur dvöldu í athvarfinu frá einum degi og upp í 73 daga, að meðaltali dvöldu konur 11 daga í senn en það er 7 dögum styttri meðaldvöl en árið á undan. Helst það í hendur við þá staðreynd að konur fóru í auknu mæli heim aftur í óbreyttar aðstæður en þær sem fara heim í breyttar aðstæður eða út á leigumarkaðinn dvelja að jafnaði lengur. Andlegt ofbeldi ástæða dvalar í 80% tilfella Rúmlega 80% kvenna nefna andlegt ofbeldi meðal annar sem orsök dvalar og 55% líkamlegt ofbeldi. Um 30% nefna ofsóknir eða morðhótanir og er þá oftast um að ræða ofsóknir af hálfu fyrrverandi eiginmanns eða sambýlismanns eða barnsföður. 20% voru með líkamlega áverka við komu en nærri helmingi fleiri höfðu hlotið líkamlega áverka áður. Hér að neðan má sjá upplýsingar um líðan kvenna vikurnar fyrir komu í athvarfið.
Mest lesið „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Innlent „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Innlent Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Erlent Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Innlent Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Innlent Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun Innlent Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Hefur áhrif að vera háður umönnunaraðilum Innlent Fleiri fréttir „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Hefur áhrif að vera háður umönnunaraðilum „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun „Aðild að Evrópusambandinu myndi skapa stöðugleika“ Olíuverð, starfslok og vinsældir hristibretta Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja „Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópusambandið“ Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Bak við lás og slá grunaður um risastórt kókaínsmygl Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn og fíkniefni í Norrænu Frestur til að svara fyrirspurn ESA löngu útrunninn Bein útsending: Fundur atvinnuvegaráðherra og sjávarútvegsstjóra ESB Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Flestir vilja leiguþak Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Sjá meira