Hætta á að gosið brjótist upp á nýjum stað 8. apríl 2010 18:43
Hætta er á því að gosið á Fimmvörðuhálsi brjóti sér leið upp á nýjum stað eftir því sem þrengist að núverandi gígopi, að mati Haraldar Sigurðssonar eldfjallafræðings. Lögreglan er hneyksluð á glæfraspili fólks í kringum eldstöðina. Eldingar hafa nú bæst við annan lífsháska eins og gufusprengingar og glóandi hraun.Gæsluvélin TF-SIF sést hér yfir gosstöðvunum en hitamyndavélar hennar hafa komið að góðum notum við að meta útbreiðslu hraunsins. Athygli vekur á þessum myndum Profilm að snjór liggur á köflum á nýja hrauninu sem sýnir hversu hratt það kólnar en vísindamenn gengu í gær þvert yfir hrauntunguna sem rann yfir gönguleiðina um Fimmvörðuháls. Eindregið er þó varað við slíku enda víða stutt í glóð undir.Gufusprengingar úr Hvannárgili skapa ennþá hættu fyrir ferðalanga, þá hafa sést eldingar í gufustrókunum, en Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur segir að eldingar séu það sem hann óttast mest þegar hann er nærri gosstöðvum.Hann telur einnig hættu á að kvikan brjóti sér nýja leið upp á yfirborð, eins og gerðist fyrir átta dögum. Sprungan sem þá opnaðist hefur verið að þrengjast niður í eitt gosop en upphaflegi gígurinn er hættur að gjósa. Haraldur telur einmitt að nýjan sprungan hafi opnast vegna þess að þrengst hafi að gígopinu, og kvikan fundið sér aðra leið, og slíkt geti endurtekið sig.Það er hins vegar leiðangur Artic Trucks með sjónvarpsmenn Top Gear þáttarins sem mesta athygli hefur fengið í dag. Jepparnir voru sérstaklega varðir gegn gjóskufalli, með bárujárnsgrind yfir þakinu, en áformað er að þátturinn verði sýndur á BBC í sumar.Emil Grímsson, stjórnarformaður Arctic Trucks, segir að 350 milljónir manna um allan heim horfi á þáttinn. Hann sé fremur skemmtiþáttur en bílaþáttur. Emil segir of mikið gert úr akstri upp á hraun en það hafi í raun verið sviðsett og aðeins komið lítill yfirborðseldur í dekkin. Tvö framdekk hafi verið sett upp á mölina við hraunkantinn. Bíða hefði þurft dálítinn tíma eftir að smáeldur kæmi í dekkin. Þá hafi bara verið bakkað út.
Mest lesið Ásthildur bendir strandveiðimönnum á minnihlutann Innlent Blámóða vofir yfir Vestfjörðum og Skagafirði Innlent Aðalsvið Tomorrowland brann til kaldra kola Erlent „Af hverju þetta brestur strax, það skiljum við ekki alveg“ Innlent Önnur sprunga opnast Innlent Vill fyrst og fremst fá að njóta ævikvöldsins í friði Innlent Grindvíkingum hleypt inn, varnargarðar hækkaðir og Bláa lónið opnar Innlent Dettifossi kippt í lag og seinkar um sólarhring Innlent Opnaði listasýningu aldargamall og segir verkin verða eins og börnin sín Innlent Strandveiðar bannaðar á morgun Innlent Fleiri fréttir Ásthildur bendir strandveiðimönnum á minnihlutann Opnaði listasýningu aldargamall og segir verkin verða eins og börnin sín Blámóða vofir yfir Vestfjörðum og Skagafirði Dettifossi kippt í lag og seinkar um sólarhring Grindvíkingum hleypt inn, varnargarðar hækkaðir og Bláa lónið opnar Vill fyrst og fremst fá að njóta ævikvöldsins í friði „Af hverju þetta brestur strax, það skiljum við ekki alveg“ Kort: Sprungan lengist til norðurs Strandveiðar bannaðar á morgun Gos í beinni, ósáttir Grindvíkingar og íbúum drekkt í steypu Alvarleg árás með hamri í Reykjavík Sýknaður af ákæru um að nauðga konu í afmælisveislu hennar Varað við fölsuðum töflum sem innihalda hættulega efnablöndu Gengu að gosinu og óku til Grindavíkur án þess að vera stöðvaðar Fundu tennur í aftursætinu á bílaþvottastöð Landa í Grindavíkurhöfn og botna ekkert í lokunum Mikið eldingaveður á Vestfjörðum Eldgosið í heimsmiðlunum: „Ísland: Rýmt“ Enn eitt gosið hafið og íbúar tala um Groundhog Day Kæmi mér ekki á óvart að þetta væri síðasta Sundhnúkagosið Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Skoða hvort gosið breyti heimsókn von der Leyen Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Fallegt og ekkert smágos Önnur sprunga opnast Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Sjá meira