Myndaði sjónvarpsstjörnu í holræsum í San Francisco 1. apríl 2010 04:15 Verkefni fyrir Motorola Sjónvarpsstjarnan Mike Rowe er í aðalhlutverki í nýrri herferð sem Ari Magg myndaði í San Francisco í desember á síðasta ári.mynd/ari Magg „
Ég er búinn að vera með umboðsmann í Bandaríkjunum sem ég hef unnið náið með í tvö til þrjú ár og þetta var fyrsta alvörubreikið,“ segir ljósmyndarinn Ari Magg. Ari tók að sér verkefni fyrir bandaríska farsímaframleiðandann Motorola í desember, en myndirnar voru teknar í San Francisco í Bandaríkjunum rétt fyrir jól. Herferðin er nýfarin af stað og í aðalhlutverki er sjónvarpsstjarnan Mike Rowe, sem stýrir þáttunum Dirty Jobs. Þættirnir hafa verið sýndir á sjónvarpsstöðinni Discovery í fjögur ár og notið talsverðra vinsælda. „Ég var meðal annars með hann í holræsum borgarinnar. Við vorum á þremur mismunandi stöðum í kringum San Francisco og voru tökustaðirnir mjög í ætt við þættina hans; skítugir og daunillir. Hann fílaði það í tætlur,“ segir Ari um verkefnið. „Myndirnar eru í mínum anda. Ég naut mín vel og hafði nokkuð frjálsar hendur í tökunum miðað við það sem gengur og gerist í verkefnum af þessari stærðargráðu.“ Auglýsingarnar eru meðal annars fyrir Motorola Brute og I1 síma og verða sýnilegar um gjörvöll Bandaríkin á risavöxnum skiltum, í tímaritum, blöðum og í verslunum Sprint, sem selja Motorola-síma. Ari hefur unnið að því að koma sér á framfæri í New York undanfarin ár og játar að púlið sé nú að skila sér. „Þetta er fyrsta alvöruverkefnið. Meistaradeildin,“ segir hann í léttum dúr. „Ég er búinn að vera að vinna mjög markvisst að þessu í þónokkurn tíma og núna er loksins eitthvað almennilegt að gerast. Þetta er erfiður markaður og það tekur tíma að ná árangri.“ Ari lofar samstarfið við Mike Rowe, sem hefur starfað lengi í bandarísku sjónvarpi, bæði sem þáttastjórnandi og rödd ýmissa þátta, þar á meðal upphafsrödd World News á sjónvarpsstöðinni ABC. „Hann hefur mjög sterka og þægilega nærveru,“ segir Ari og neitar því að hann sé með nokkurs konar stjörnustæla. „Hann er ótrúlega viðkunnanlegur, í raun bara alveg eins og hann kemur fyrir í þessum þáttum.“ atlifannar@frettabladid.is
Mest lesið „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Lífið Opnar sig um kvíða og þunglyndi Lífið Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Lífið Fréttatía vikunnar: Kvika, Kristján og Krakkamín Lífið Saumaði föt úr gardínum fyrir ballið Lífið Láta lægð í kvikmyndaiðnaði ekki stöðva sig og opna nýtt stúdíó Lífið Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Lífið „Þetta pólýsamband er orðið að mormónahjónabandi“ Bíó og sjónvarp Pétur Jóhann bregður á leik vegna nýrrar bókar Jóns Ársæls Lífið Hvað er það versta sem þú hefur gert? Gagnrýni Fleiri fréttir Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Opnar sig um kvíða og þunglyndi Láta lægð í kvikmyndaiðnaði ekki stöðva sig og opna nýtt stúdíó Pétur Jóhann bregður á leik vegna nýrrar bókar Jóns Ársæls „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Saumaði föt úr gardínum fyrir ballið Fréttatía vikunnar: Kvika, Kristján og Krakkamín Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Sjá meira